The Verge skýrir frá þessu. skilaboðin voru send aðfaranótt föstudags og voru móttakendur í öllum ríkjum landsins, þeir skipta við mismunandi símafélög og nota mismunandi tegundir síma svo ekki er hægt að tengja mistökin við afmarkaða þætti.
Þessi tæknilegu mistök höfðu í för með sér vandræðalegar, óheppilegar og sorglegar aðstæður eins og er hægt að lesa um í fjölda tísta á Twitter.
Kona ein skrifaði til dæmis að hún hefði vaknað og séð að hún átti skilaboð frá fyrrum unnusta sínum og hafi þetta verið „kjánalegt“.
„Ég fékk sms frá fyrrum unnusta mínum um að hann gæti ekki beðið eftir að hitta mig i kvöld. Á Valentínusardegi af öllum dögum. Það hljóta að hafa verið mörg vandræðaleg augnablik í dag.“
Aðrir lentu í öllu sorglegri aðstæðum vegna skilaboðanna eins og til dæmis KuribHoe:
„Ég var að fá sms úr síma bestu vinkonu minnar, eini vandinn er að hún lést í febrúar.“
Fleiri hafa skýrt frá því að þeir hafi fengið sms frá látnum foreldrum eða mökum.
Það er fyrirtækið Syniverse sem á sök á þessu en það þjónustar fjölda bandarískra símafélaga. Fyrirtækið hefur nú beðist afsökunar á málinu.