fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Pressan

168.000 Valentínusarskilaboð bárust níu mánuðum of seint

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 13. nóvember 2019 17:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Gleðilegan Valentínusardag“. Skilaboð á borð við þessi fengu 168.149 Bandaríkjamenn að morgni föstudags. Ástæðan er tæknibilun sem varð til þess að skilaboðin, sem voru send 14. febrúar, bárust ekki fyrr en á föstudaginn.

The Verge skýrir frá þessu. skilaboðin voru send aðfaranótt föstudags og voru móttakendur í öllum ríkjum landsins, þeir skipta við mismunandi símafélög og nota mismunandi tegundir síma svo ekki er hægt að tengja mistökin við afmarkaða þætti.

Þessi tæknilegu mistök höfðu í för  með sér vandræðalegar, óheppilegar og sorglegar aðstæður eins og er hægt að lesa um í fjölda tísta á Twitter.

Kona ein skrifaði til dæmis að hún hefði vaknað og séð að hún átti skilaboð frá fyrrum unnusta sínum og hafi þetta verið „kjánalegt“.

„Ég fékk sms frá fyrrum unnusta mínum um að hann gæti ekki beðið eftir að hitta mig i kvöld. Á Valentínusardegi af öllum dögum. Það hljóta að hafa verið mörg vandræðaleg augnablik í dag.“

Aðrir lentu í öllu sorglegri aðstæðum vegna skilaboðanna eins og til dæmis KuribHoe:

„Ég var að fá sms úr síma bestu vinkonu minnar, eini vandinn er að hún lést í febrúar.“

Fleiri hafa skýrt frá því að þeir hafi fengið sms frá látnum foreldrum eða mökum.

Það er fyrirtækið Syniverse sem á sök á þessu en það þjónustar fjölda bandarískra símafélaga. Fyrirtækið hefur nú beðist afsökunar á málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Í gær

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða
Pressan
Í gær

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur
Pressan
Í gær

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV
Pressan
Fyrir 3 dögum

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum