fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

Deila sögum og myndum af leigjendum Airbnb í Facebookhópum – Birta nöfn og kynlífssögur

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 06:00

Airbnb herðir útlánsreglur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar fólk leigir sér húsnæði í gegnum Airbnb eða aðrar álíka vefsíður reiknar það með lágmarks einkalífi þegar það er í sambandi við leigusalana fyrir og eftir leigutímann sem og á meðan á leigunni stendur. En það er nú ekki alltaf svo.

Samkvæmt umfjöllun lífsstílsblaðsins Skift þá skrifa leigusalar, sem leigja eignir út í gegnum Airbnb, um gesti sína í Facebookhópum á borð við „Airbnb Host Community – Vent, Reccommend and Discuss“ og „Airbne Guest Blacklist“. Þar er ýmislegt látið fjalla um leigjendurna. Þetta eru lokaðir hópar en þar sem margir eru í þeim, rúmlega 17.000 í þeim fyrrnefnda, er umfjöllunarefnið ekki lengur mjög mikið leyndarmál.

Í umfjöllun Skift kemur fram að það sé aðallega skrifað um nafngreinda leigjendur sem sýna af sér slæma framkomu og/eða umgengni sem skrifað er um. En einnig eru dæmi um að skrifað hafi verið um ákveðna þjóðfélagshópa og varað við að leigja þeim, þar eru nefndir til sögunnar Kínverjar, fólk yfir sjötugu og konur á eftirlaunum.

Þar sem skýrt er frá nöfnum gestanna getur hér verið um brot gegn friðhelgi einkalífsins að ræða. Nefnt er sem dæmi að gestgjafi í Wisconsin í Bandaríkjunum hafi birt mynd af gesti (konu) og nafn hennar. Á myndinn sést konan sitja á hækjum sér að pissa í garðinum við húsið.

„Eitt af baðherbergjunum er mjög nærri dyrunum út í garð þar sem nuddpotturinn okkar er. Samt sem áður nennir þetta svín ekki að fara inn og pissa og pissar á grasið mitt.“

Skrifaði gestgjafinn í hópnum „Airbnb Guest Blacklist“.

Skift segir einnig mörg dæmi um að skrifað hafi verið um gesti sem hafi stundað kynlíf í íbúðum á vegum Airbnb.

Eftir að Skift gerði Facebook viðvart um þessa hópa lokaði samfélagsmiðillinn „Airbnb Guests Blacklist“. Í hinum hópnum, „Airbnb Host Community“ hafa reglurnar verið hertar og nú er lokað á fólk sem brýtur gegn friðhelgi gesta sinna.

En „Airbnb Guests Blacklist“ var stofnuð daginn eftir að henni var lokað og streymdu meðlimir þar inn strax á fyrstu klukkustundunum. Markmið hópsins er sagt vera að vera gagnabanki þar sem hægt er að leita að „slæmum“ gestum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna áttu ekki að sofna yfir sjónvarpinu

Þess vegna áttu ekki að sofna yfir sjónvarpinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar