fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Pressan

Barnastjarna lést á sviplegan hátt

Ritstjórn Pressunnar
Mánudaginn 11. nóvember 2019 11:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laurel Griggs, ung og upprennandi leikkona, lést um helgina aðeins þrettán ára að aldri. Þrátt fyrir ungan aldur hafði Laurel komið fram á Broadway í sjö ár og kom hún meðal annars fram með stórleikkonunni Scarlett Johanson.

Í frétt USA Today kemur fram að banamein Laurel hafi verið astmakast sem leiddi til þrengsla í öndunarvegi hennar.

„Laurel var barn sem alla foreldra dreymir um að eiga. Hún var frábær stúlka, gat farið í öll hlutverk og gleymdi aldrei línunum sínum. Ég heyrði hana heldur aldrei kvarta,“ sagði afi hennar, David Rivlin.

Laurel lék meðal annars í Cat on a Hot Tin Roof og söngleiknum Once sem frumsýndur var árið 2013. Þá kom hún nokkrum sinnum fram í skemmtiþættinum Saturday Night Live. Sjúkralið var kallað að heimili hennar síðastliðinn þriðjudag en hún var úrskurðuð látin við komuna á sjúkrahús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orrustan um Bretland

Orrustan um Bretland
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu