fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

Svíar velja frekar lest en flug og það er Gretu að þakka

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Sunnudaginn 10. nóvember 2019 17:00

Greta Thunberg í ham.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greta Thunberg er nafn sem flest mannsbörn þekkja. Hún hefur vakið athygli undanfarna mánuði fyrir baráttu sína fyrir jörðina. Meðal þess sem Greta hefur einsett sér að gera er að stíga aldrei fæti aftur upp í flugvél. Í staðinn hefur hún lagt á sig langferðir, til dæmis að sigla til New York á umhverfisvænni skútu í ágúst, ferð sem tók hana tvær vikur. Greta hætti að fljúga þegar hún var tólf ára gömul, eða fyrir fjórum árum. Það er vitað mál að loftslagsverkföll Gretu hafa fangað athygli heimsins og margir hafa fetað í fótspor hennar. Nú hafa samlandar hennar einnig byrjað að snúast til fluglauss lífsstíls.

Tagskryt og flygskam

Alls búa um tíu milljónir í Svíþjóð og hafa 14.500 íbúar skráð sig í herferð á vegum óhagnaðardrifnu samtakanna Vi håller oss på jorden, eða Við höldum okkur á jörðinni, sem felst í því að fljúga ekkert árið 2019. Samtökin áætla að þessi fjöldi fari upp í hundrað þúsund Svía á næsta ári, eða eitt prósent af íbúum í landinu. Það sem af er ári hefur farþegafjöldi í innanlandsflugi minnkað um átta prósent og í alþjóðlegu flugi um þrjú prósent samkvæmt tökum frá Swedavia, sem rekur stærstu flugvelli landsins. Hins vegar er aukning í sölu á lestarmiðum það sem af er ári og gaf lestarfyrirtækið SJ það til að mynda út að sala hefði aukist um fimmtán prósent á milli júlí og september miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Einnig er hægt er að skynja þessar breytingar á samfélagsmiðlum, þótt þeir miðli ekki alltaf raunveruleikanum. Þannig hefur Facebook-hópurinn Tågsmester farið úr að vera með fjögur þúsund meðlimi árið 2018 yfir í rúmlega hundrað þúsund í dag. Í hópnum skiptast meðlimir á ráðum um hvernig eiga að komast leiðar sinnar í lest og hvernig eigi að næla sér í besta verðið á lestarmiðum. Þá hafa Svíar einnig fundið upp á nýyrðum til að fanga þessa lífsstílsbreytingu sem virðist vera að gerast hjá stórum hluta þjóðarinnar. Orðið „tagskryt“ þýðir til dæmis lestarmont, „smygflyga“ þýðir leyniflug og svo er það frasinn sem Íslendingar þekkja vel; „flygskam“, eða flugviskubit.

Sýnileg aukning Sala á lestarmiðum hefur aukist á þessu ári.

Góð aðlögunarhæfni

Þótt Svíar glími vissulega við sömu vandamál og restin af heiminum þegar kemur að loftslagsmálum þá búa þeir vel þegar kemur að því að skipta yfir í umhverfisvænni ferðamáta. Landið er ekki mjög stórt og lestarkerfið er afar skilvirkt og vel skipulagt. Hefur raunar verið það í áratugi. Því getur þessi breyting á ferðavenjum Svía átt sér stað tiltölulega hraðar en í löndum á borð við Bandaríkin. Þá er Svíþjóð vel tengd við meginland Evrópu í gegnum Eyrarsundsbrúna, sem tengir Suður-Svíþjóð við höfuðstað Danmerkur, Kaupmannahöfn. Þaðan er síðan leikur einn fyrir Svía að ferðast með lest vítt og breitt um Evrópu. Greger Henriksson, sérfræðingur hjá konunglegu tæknistofnuninni í Stokkhólmi, segir að þessi öra breyting á venjum Svía gerist einnig að miklu leyti hjá fólkinu sjálfu.

„Svíar eiga auðvelt með að aðlaga sig aðstæðum,“ segir hann í samtali við Huffington Post. „Þegar við hrífumst af tískubylgju erum við fljót að tileinka okkur hana, hvort sem það er að kaupa lestarkort eða gera tuttugu sekúndna æfingu á dag á steinaldarkúrnum.“

Inn í þetta spilar að Svíar eiga rík réttindi þegar kemur að frídögum frá vinnu, líkt og við Íslendingar. Meðal-Svíinn á vinnumarkaði á rétt á fimm vikum í launað frí á ári. Þá ríkja þar rýmri reglur um töku fæðingarorlofs en til að mynda á Íslandi og fólk getur klippt orlofið og skorið til að til dæmis lengja sumarfríið. Því er auðveldara fyrir Svía að fara í langar lestarferðir í sumarfríinu.

Tilraunaland Svíar eru búnir góðri aðlögunarhæfni.

Metnaðarfull áform

Það er hins vegar óljóst hvort þessi þróun í Svíþjóð geti orðið svo hröð annars staðar í heiminum. Nýleg rannsókn alþjóðabankans UBS leiðir í ljós að 24 prósent Bandaríkjamanna og sextán prósent Breta segjast vera að fækka flugferðum sínum vegna loftslagsbreytinga. Það eru þó óáreiðanlegar tölur því vilji fólks til að gera eitthvað endurspeglar ekki alltaf hvað það svo á endanum ákveður. Í Svíþjóð stefnir allt í að þessi þróun hraði enn á sér á næsta ári, til dæmis vegna þess að lestarfyrirtækið SJ mun breyta áætlunum í desember og mun bjóða upp á fleiri möguleika í næturlestarferðum og tengilestarferðum. Þannig gætu til að mynda íbúar í Stokkhólmi hoppaði í lest til Kaupmannahafnar og náð í tengiferð til Þýskalands og borðað hádegismat í Hamborg. Sænsk yfirvöld hafa einnig sett af stað stýrihóp í samvinnu við stóru lestarfyrirtækin til að koma á metnaðarfullu lestarkerfi sem teygir sig um allt meginland Evrópu.

Sem stendur er lítill sem enginn verðmunur á því að ferðast um Evrópu með lest eða að fljúga með lággjaldaflugfélagi. Hvort það breytist með þessum stórtæku áformum yfirvalda er enn óljóst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi
Pressan
Í gær

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“