fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

35 ökumenn óku fram hjá líkinu án þess að stoppa – Óhugnanlegt myndband

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 7. nóvember 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neri Ramires Chalo, 22 ára Bandaríkjamaður, varð fyrir bíl í Los Angeles á föstudagskvöld í síðustu viku.

Á myndbandi úr öryggismyndavélum við götuna má sjá þegar Neri hljóp þvert yfir götuna. Skyndilega komu tveir bílar á ofsahraða og ók annar þeirra á Neri á miklum hraða.

Þegar vegfarendur áttuðu sig á því sem gerst hafði voru lögregla og sjúkralið kölluð til, en Neri var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Í frétt ABC News kemur fram að 35 bílar hafi ekið framhjá Neri, þar sem hann lá í blóði sínu á götunni, án þess að stoppa. Sumir hægðu á sér eða skiptu um akrein til að aka ekki yfir Neri þar sem hann lá í götunni, nokkuð frá staðnum þar sem slysið varð.

Lögregla telur að ökumennirnir tveir sem sjást á umræddu myndbandi hafi verið í kappakstri og verið á rúmlega 60 mílna hraða (96 kílómetrar á klukkustund) á svæði þar sem hámarkshraði er 40 mílur (64 kílómetrar á klukkustund). Báðir ökumennirnir óku af vettvangi án þess að stoppa. Lögregla telur sig vita hver ökumaðurinn er sem ók á Neri en hann er þó ekki í haldi lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum
Pressan
Í gær

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fimm ótrúleg mál – Mannránin sem gleymast aldrei

Fimm ótrúleg mál – Mannránin sem gleymast aldrei
Pressan
Fyrir 3 dögum

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur