fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Telur að verðmæti Tesla muni lækka um 80 prósent

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 15. október 2019 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Scott Galloway, prófessor í markaðsfræði við NYU Stern School of Business, segir í bloggfærslu að erfiðir tímar séu framundan hjá Tesla bílaframleiðandanum. Hann segir að markaðsvirði fyrirtækisins muni lækka um 80 prósent eða jafnvel þurrkast alveg út á næstu 10 árum. Ástæðan er að hans sögn að fyrirtækið er ekki nægilega stórt til að keppa á markaði.

Í grein sinni fjallar hann um nokkur nýsköpunarfyrirtæki sem eru nú metin á meira en einn milljarð dollara og segir verðmæti þeirra ofmetið. Meðal þessara fyrirtækja er Tesla.

Galloway var á lista yfir 50 bestu viðskiptafræðirprófessora heimsins árið 2012. Hann spáði fyrir um kaup Amazon á Whole Foods keðjunni löngu áður en viðskiptin fóru fram sumarið 2017. Hann er ekki einn um að spá fyrir um erfiða tíma hjá Tesla en slíkum spám er yfirleitt mætt með harðri gagnrýni frá fólki sem hefur mikla trú á Elon Musk og Tesla.

Galloway segir í grein sinni að Tesla hafi breytt heiminum til hins betra og að Elon Musk sé snillingur en Tesla sé einfaldlega ekki nægilega stórt fyrirtæki til að geta keppt á hörðum markaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Í gær

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Í gær

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?