Októberfest er nýafstaðin í München í Þýskalandi. Að vanda sóttu margir þessa vinsælu hátíð sem stendur yfir í 16 daga en rúmlega 6 milljónir sækja hátíðina ár hvert. Lögreglan er vön að fást við ýmislegt tengt hátíðinni, til dæmis slagsmál og deilur. En nú hefur nýr verkefnaflokkur bæst við hjá henni. Það eru ölvaðir hátíðargestir á rafmagnshlaupahjólum.
Rafmagnshlaupahjól voru bönnuð á hátíðinni en það kom ekki í veg fyrir að vandræði hlytust af þeim. 414 voru teknir grunaðir um að vera ölvaðir á þessum vinsæla fararskjóta. 254 þeirra voru sviptir ökuréttindum sínum vegna þessa. DW skýrir frá þessu.
Rafmagnshlaupahjól urðu lögleg í Þýskalandi í júní og eru flokkuð sem vélknúið farartæki. Það þýðir að lög um ölvunarakstur ná yfir þau og því fengu fyrrnefndir hátíðargestir að kynnast.
En það voru ekki aðeins ölvaðir hlaupahjólaökumenn sem voru til vandræða því eftir því sem talsmaður lögreglunnar í borginni sagði voru hlaupahjól notuð sem leikföng á hátíðinni. Það hafði í för með sér að á hverri nóttu varð að fjarlægja stóra stafla af rafmagnshlaupahjólum af götum borgarinnar.