Þráðlaus stýrikerfi, lampar með innbyggðum hátölurum og perur með gervigreind eru aðeins byrjunin á því sem koma skal hjá fyrirtækinu.
The Verge skýrir frá þessu. Fram kemur að í fréttatilkynningu frá IKEA komi fram að fyrirtækið hyggist fjárfesta mikið í snjalllausnum fyrir heimili og muni koma með vörur sem henti vel á snjallheimili framtíðarinnar.
Þetta er að sögn stærsta fjárfesting IKEA síðan fyrirtækið setti barnahúsgögn á markaðinn.