Maður sem kallaður hefur verið „Hollywood Ripperinn“ var nýlega sakfelldur fyrir dómstóli í LA fyrir tvö morð og eina morðtilraun. Glæpirnir áttu sér stað fyrir löngu síðan, á sjö ára tímabili frá árinu 2001 til 2008. Maðurinn heitir Michael Gargiulo og er 43 ára gamall í dag. Um það leyti sem glæpirnir voru framdir var hann upprennandi leikari.
Leikarinn Ashton Kutcher bar vitni fyrir dómnum og sagði frá því er hann mætti til stefnumóts við stúlkuna heima hjá henni en dyrnar voru læstar. Hins vegar voru ljós kveikt. Er hann leit inn um glugga sá hann rauðan vökva sem hann taldi vera rauðvín sem hefði hellst niður.
Kutcher var 23 ára á þessum tíma og stúlkan sem hann ætlaði að hitta, Ellerin, var 22 ára. Morguninn eftir fann meðleigandi Ellerin látna í íbúðinni. Micheal Gargiulo hafði brotist inn til hennar og stungið hana mörgum sinni með hnífi.
Gargiulo var einnig sakfelldur fyrir að hafa stungið nágranna sinn til bana árið 2005, en það var kona að nafni Maria Bruno. Hún var þá 32 ára. Einnig var hann sakfelldur fyrir að hafa ráðist á 26 ára gamla konu árið 2008 en hún slapp frá honum.
Gargiulo var handtekinn árið 2008 og reyndi þá að flýja úr fangelsi. Saksóknarar telja að Gargiulo hafi framið fleiri morð og það fyrsta hafi verið er hann sem unglingur myrti 18 ára stúlku árið 1993 í Chicago. Talið er að Gargiulo verði ákærður fyrir þann glæp síðar. Hann hefur nú þegar verið sakfelldur fyrir tvö morð og eina morðtilraun en refsing hans verður ákvörðuð síðar.