Það varð uppi fótur og fit á keníska þinginu síðasta miðvikudag. Þar var ákveðinn þingmaður sakaður um að hafa prumpað með tilheyrandi óþef. Allt endaði þetta með að mikið uppnám varð á þingfundinum og varð að gera hlé á honum.
„Virðulegi forseti, einn okkar mengaði loftið og ég veit hver það er.“
Sagði þingmaðurinn Julius Gaya eftir að óþefurinn gaus upp. En sá sem hann benti á sór af sér allar sakir.
„Það var ekki ég. Ég get ekki gert svona innan um starfsbræður mína.“
Edwin Kakach, þingforseti, reyndi að hreinsa andrúmsloftið og skipaði þingmönnum að fara út í smá stund og anda að sér fersku lofti. Hann bað starfsfólk þingsins einnig um að koma inn með ilmefni.
„Við getum ekki setið áfram í umhverfi sem lyktar svona illa.“
Er þingforsetinn sagður hafa sagt.