Ástralski leikarinn Geoffrey Rush fær 360 milljónir í bætur frá Daily Telegraph í Ástralíu vegna fréttaflutnings um meinta óviðeigandi hegðun hans í garð samleikara.
Sjá einnig: Stórleikari miður sín eftir umfjöllun: Borðar ekki og fer varla út úr húsi
Samkomulag lögmanna Rush og lögmanna útgáfufélags Daily Telegraph hafa komist að samkomulagi um þetta. Áður hafði Rush boðið félaginu að greiða sex milljónir króna og að hann fengi afsökunarbeiðni. Því boði var hafnað.
Árið 2017 fjallaði blaðið ítarlega um leikarann og meinta óviðeigandi hegðun hans meðan á sýningum Lér konungs stóð yfir. Var hann til dæmis sagður hafa káfað á samleikkonu sinni, Eryn Jean Norvill. Sjálfur þvertók Rush fyrir að hafa gert eitthvað óeðlilegt.
Geoffrey Rush á að baki farsælan feril í leiklistinni og vann hann til að mynda til Óskarsverðlauna sem besti leikarinn í aðahlutverki fyrir myndina Shine árið 1997. Þá hefur hann þrisvar verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn, síðast árið 2011 fyrir aukahlutverk í myndinni The King‘s Speech.