Ljóst er að hinir látnu hafa verið settir í gröfina í skyndingu og að þeir hafa verið drepnir á ofbeldisfullan hátt að sögn fornleifafræðinganna. Áverkar eru á öllum beinagrindunum sem benda til að sverðum eða öðrum vopnum hafi verið beitt gegn þeim. Allt bendir því til að þeir hafi fallið í orrustu.
Líklegt þykir að mennirnir hafi fallið í átökum um Álaborg 1534 en þá létust mörg hundruð manns.