fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

150 veganistar réðust inn á landareign þrumulostins bónda

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 27. mars 2019 05:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David McNamee, sem er bóndi í Queensland í Ástralíu, brá illa í brún á laugardaginn þegar 150 veganistar réðust inn á landareign hans. Þeir töldu að McNamee hugsaði ekki vel um dýrin sín og réðust því inn á landareignina. McNamee gat lítið annað gert en staðið áleiðis og fylgst með.

Það voru samtökin Animal Activist Collective sem skipulögðu aðgerðina. Daily Mail og News.com.au skýra frá þessu.

Fram kemur að veganistarnir hafi verið klæddir í hvíta heilgalla og svarta stuttermaboli með áletruninni „meat the victims“. Aðgerðin hafði verið í farvatninu um langa hríð og var að sögn vel skipulögð. Dróni var með í för og var hann á lofti allan tímann og myndaði það sem fram fór.

Veganistarnir á leið að landareign McNamee.

McNamee reyndi að stöðva för veganistana en þeir hlustuðu ekki á hann og sögðu honum að eina ástæðan fyrir að hann vildi ekki fá þá inn á landareign sína væri að hann hefði eitthvað að fela.

Veganistarnir dreifðu sér síðan um landareignina og mynduðu allt í bak og fyrir. Meðal þess sem þeir fundu voru nokkrar dauðar kýr. McNamee, sem var greinilega illa brugðið við komu veganistana, sagði að þær hefðu verið skotnar.

Einn af dauðu gripunum.

„Hvernig getur það sem þú hefur gert talist vera mannúðlegt?“

Sögðu veganistarnir þá við hann.

Lögreglan kom á vettvang en þá voru veganistarnir á bak og burt.

McNamee reyndi að stöðva veganistana.

Á Facebooksíðu Animal Activist Collective birtist síðan færsla þar sem fram kom að samtökin væru að reyna að komast að sannleikanum.

„Í nútímasamfélaginu eru dýr ekki virt til jafns við fólk. Þetta er ákveðið form mismununar. Aðgerðir sem þessar hafa að markmiði að berjast gegn þessu kúgunarkerfi sem hefur gert dýr að hlutum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“