Fréttir

Áfengi dýrast á Íslandi í allri Evrópu - Áfengisskattar hækka enn frekar um áramót

Mynd
Er áfengi of dýrt hér á landi?

Samkvæmt nýrri rannsókn Eurostat á verði á áfengi í bæði ESB og EFTA löndunum er Ísland sá staður hvar áfengi er dýrast. Kom í ljós að verð á áfengi hér á landi er meira en tvöfalt meira en meðaltalsverðið í Evrópu. Meðaltalið er reiknað sem 100% í Evrópu, en Ísland mælist með 267.6.

Næst kemur Noregur með 252.2, en áfengisskattar eru afar háir þar líkt og hér á landi, en í fjárlögum Íslands fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir skattahækkun á áfengi sem nemur 2.5 prósentum og tekur gildi um áramótin.

Þetta er í takt við fyrri kannanir, bæði á áfengi og annarri þjónustu hér á landi.

Sjá nánar: Reykjavík er næstdýrasta borg í Evrópu – Með dýrasta bjórinn og dýrustu söfnin

Sjá nánar: Gríðarlegur verðmunur á Reyka vodka á Íslandi og í Bandaríkjunum

Sjá nánar: Íslenskir bjórframleiðendur fullir gremju:„Mun flóknara að brugga góðan bjór en að búa til vín“

Samanburður við önnur lönd

Ísland sker sig nokkuð úr frá öðrum löndum sem við viljum bera okkur saman við, líkt á sjá má á töflunni hér að neðan en ódýrasta áfengið fæst í Norður Makedóníu og Bosníu.

Land      Prósent af meðalverði í Evrópu

Ísland – 267.6

Noregur - 252.2

Svíþjóð - 152

Bretlandi - 129

Danmörk - 124

Þýskaland - 88.5

Spánn- 84

Norður-Makedónía og Bosnía - 72