DV.is birti í gær frétt um að íslenskt lambalæri hefði fengist í Carrefour-súparmarkaðnum á Spáni á helmingi lægra verði en algengt verð er á Íslandi. Rætt var við Íslending sem keypti kjötið á Spáni og blöskraði verðmunurinn en hann greindi fyrst frá þessu á Facebook.
DV barst í morgun póstur frá Bændasamtökum Íslands þar sem á það er bent að um sé að ræða lambabóg, en ekki lambalæri. Það hafi forstöðumaður KS staðfest við Bændasamtökin í morgun. Læri frá KS hafi ekki farið á þennan markað í þeim pakkningum sem um ræðir.
„Fram kemur í pósti Bændasamtakanna að verðið á bóginum hafi verið 7,9 evrur á kíló árið 2015, eða um 1.180 krónur á þáverandi gengi. Eftir því sem DV kemst næst er kílóverð af lambabógi í Bónus 898 krónur. “
Fréttin frá því í gær hefur verið tekin úr birtingu og DV biðst afsökunar á mistökunum.