fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Neytendur

Sbarro valið til veitingasölu á Keflavíkurflugvelli í sumar

Fyrsta sinn sem Isavia auglýstir eftir tímabundnum rýmum til veitingasölu

Björn Þorfinnsson
Mánudaginn 29. maí 2017 14:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Sbarro, sem meðal annars hefur útibú í Kringlunni og Smáralind, hefur verið valinn í tímabundið veitingarými sem sett verður upp í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem Isavia auglýsir eftir aðilum í tímabundið rými en fyrirkomulagið er þekkt á flugvöllum erlendis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Isavia.

Isavia auglýsti í apríl eftir aðilum til að reka veitingasölu í rýminu sem er á biðsvæði fyrir skiptifarþega sem fara um Keflavíkurflugvöll á leið sinni á milli Evrópu og Norður-Ameríku. Skiptifarþegum hefur farið fjölgandi undanfarin ár og eru þarfir þeirra til afgreiðsluhraða á veitingum oft aðrar en þeirra sem hafa viðdvöl í landinu. Skiptifarþegar dvelja að meðaltali í um 60 mínútur í flugstöðinni og var því lögð rík áhersla á afgreiðsluhraða og gæði í vali á veitingaaðila. Í þjónustukönnunum Isavia hefur komið fram að skiptifarþegum hefur þótt vanta upp á úrval veitingastaða í suðurbyggingu og er þetta svar Isavia við þeirri eftirspurn.

Fjórtán aðilar sendu inn umsókn á fyrra stigi og fengu fimm þeirra tækifæri til að skila inn frekari gögnum fyrir valnefnd sem í sátu einn fulltrúi frá Isavia og tveir utanaðkomandi aðilar. Eftir nánari kynningu á fyrirkomulagi bárust upplýsingar frá tveimur áhugasömum aðilum. Við mat á gögnunum var tekið tillit til þeirra viðmiða sem sett voru fram í auglýsingu og þá sérstaklega hvað varðar þjónustu við þá farþega sem einungis millilenda hér á landi á leið sinni milli heimsálfa. Var til að mynda horft til þess að mikilvægt væri að veitingasöluaðilinn bæri fram veitingar sem neytendur þekkja og að afgreiðsla vörunnar væri bæði hröð og einföld. Valnefnd þótti Sbarro líklegasti aðilinn til að skila sem bestum árangri að teknu tilliti til fyrrgreindra viðmiða.

Útleigutímabil er frá 1. júní 2017 til 20. nóvember 2017 og er stefnt að opnun veitingasölunnar um miðjan júní. Isavia stefnir að því að leigja tímabundin rými út yfir vetrar- og sumartímabil og er stefnt að því að bjóða einnig út verslunarrými yfir vetrartímann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“