Barnavöruheildverslunin Engey ehf. hefur ákveðið að innkalla Tigex-snuddubönd sem seld eru í verslunum Hagkaups.
Samkvæmt tilkynningu á vef Neytendastofu er ástæða innköllunarinnar sú að smáir hlutir geta losnað af snuddubandinu og valdið köfnunarhættu.
Eru viðskiptavinir sem hafa keypt þessa vöru beðnir um hætta að nota þær tafarlaust og að hafa samband við Engey. Böndin hafa verið seld í verslunum Hagkaups í Kringlunni, Smáralind, Garðabæ, Skeifunni og Akureyri.