Svölu spáð 13. sæti en 10 þjóðir komast áfram í úrslitin
Svala Björgvinsdóttir keppir fyrir Íslands hönd á fyrra undakvöldi Eurovision á þriðjudagskvöld. Líkt og fram kom á DV.is fór önnur æfing Svölu á sviðinu í Kiev fram í gær og var gerður góður rómur að frammistöðu hennar þar. 18 þjóðir keppa á undankvöldinu en aðeins tíu komast áfram. Ef spár erlendra veðbanka eru skoðaðar virðist útlitið hins vegar ekki gott fyrir Ísland um að vera á meðal þeirra tíu þjóða sem komast áfram á úrslitakvöldið 13. maí næstkomandi.
Á vefsíðunni Eurovision World er haldið utan um lista yfir stuðla fimmtán erlendra veðbanka á hvaða þjóðir muni komast áfram á fyrra undankvöldinu og út frá meðaltalinu er raðað í sæti. Svíþjóð, Armenía og Portúgal skipa efstu þrjú sætin.
Því miður fyrir Svölu og íslenska Eurovision-áhugamenn þá er Íslandi spáð 13. sæti á undankvöldinu sem ekki myndi duga til að koma okkur áfram. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru Pólland og Lettland í sætunum fyrir ofan okkur og er talið líklegt að Kýpur hreppi 10. og síðasta sætið áfram. Litlar breytingar hafa orðið á spám veðbanka fyrir Ísland á undanförnum vikum. Við Íslendingar verðum hins vegar að vona að þeir hafi rangt fyrir sér enda er spá aðeins spá.
Hvað finnst þér? Eigum við séns? Taktu þátt í könnuninni hér fyrir ofan.