Og svo tjöllum við okkur í rallið og Frelsi tilnefndar
Endurminningabókin Og svo tjöllum við okkur í rallið eftir Guðmund Andra Thorsson og ljóðabókin Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur eru meðal þeirra 12 verka sem eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna norðurlandaráðs 2017. Verðlaunin verða afhent þann 1. nóvember í Finlandia-húsinu í Helsinki. Hvorug bókin var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna en Linda hlaut Menningarverðlaun DV 2015 fyrir Frelsi.
Aðrir sem eru tilnefndir til verðlaunanna eru eftirfarandi.
Frá Danmörku eru það Christina Hesselholdt fyrir skáldsöguna Vivian og Kirsten Thorup fyrir skáldsögunu Erindring om kærligheden.
Frá Finnlandi eru það Laura Lindstedt fyrir skáldsöguna Oneiron og Tomas Mikael Bäck fyrir ljóðabókina De tysta gatorna.
Frá Færeyjum er það Sissal Kampmann fyrir ljóðabókina Sunnudagsland.
Frá Noregi eru það Vigdis Hjort fyrir skáldsöguna Arv og miljø og Henrik Nor-Hansen fyrir skáldsöguna Termin. En fremstilling av vold i Norge.
Frá Svíþjóð eru það Ann Jäderlund fyrir ljóðasafnið Djupa, kärleg, ingen. Dikter 1992-2015 og Birgitta Lillpers fyrir ljóðabókina Anteckninger om hö.
Frá Álandseyjum er það Jóhanna Boholm fyrir Jag är Ellen.
Lestu bókadóm DV um Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur: Hryktir í marvaðamyllunni