Einn þekktasti djasstónlistarmaður heims kemur til Íslands
Djassgoðsögnin Herbie Hancock kemur fram á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu 20. júlí næstkomandi. Í meira en hálfa öld og á yfir 60 plötum hefur þessi margverðlaunaði píanisti brætt djassinum saman við rokk, fönk og raftónlist með einstökum árangri. Meðal þekktustu laga Hancock eru „Chameleon,“ „Cantaloupe Island,“ „Watermelon Man,“ „Maiden Voyage,“ „I Thought It Was You“ og „Rockit.“
„Tónlist hans heldur áfram að heilla menn um heim allan og alkunna er að ungir jasspíanóleikarar leita óspart í smiðju hans. Þeir eru ekki margir sem hafa haft viðlíka áhrif á jass og Herbie Hancock,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari í tilkynningu.
Á tónleikunum í Hörpu í júlí mun Hancock njóta liðsinnis Vinnie Colaiuta, James Genus, Lionel Loueke og Terrace Martin.