fbpx
Mánudagur 25.september 2023
Matur

Afskekktasti veitingastaður í heimi

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 1. júní 2023 10:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í heimildarmynd Viaplay The Most Remote Restaurant in The World eða Afskekktasti veitingastaður í heimi, er fylgst með Poul Andrias Ziska og teyminu að baki færeyska tveggja Michelin-stjörnu veitingastaðarins KOKS í ótrúlegu ævintýri þegar þau flytja allan veitingastaðinn í afskekkta byggð í Grænlandi. Heimildarmyndin The Most Remote Restaurant in The World verður frumsýnd á Viaplay í dag, 1. júní.Á einum af afskekktari stöðum Grænlands er þorpið Ilimanaq. Í þessari litlu byggð, sem er sú elsta á Grænlandi, búa aðeins 50 manneskjur og til að komast þangað þarf að leggja á sig strembna bátsferð um íshafið. Þrátt fyrir þessa augljósu hindrun er stjörnukokkurinn Poul Andrias Ziska og teymið hans harðákveðin: Þau ætla að opna sælkeraveitingahús í heimsklassa, einmitt þar.

Færeyska veitingahúsið KOKS lokar eldhúsinu og stefnan er tekin á Grænland til að bjóða gestum hvaðanæva að úr heiminum upp á einstaka matarupplifun. En áskoranirnar bíða í röðum. Eða hvað skal til bragðs taka þegar ekkert eldhús er á staðnum? Þegar Poul Andrias og teymið hans koma á staðinn átta þau sig á að ofnar, eldavélar og framreiðsluborð eru enn í pappakössum. Og þegar aðeins 11 dagar eru í opnun veitingastaðarins er ekki búið að gera handtak í að innrétta Michelin-eldhús. Ofan á það kemur í ljós að það er erfiðleikum bundið að útvega hráefni í 22 rétta matseðil. Ætla mætti að nóg væri til af sel og fiski á Grænlandi en annað kemur í ljós. Trúin á þetta metnaðarfulla verkefni fer smátt og smátt að dvína hjá hópnum og heimamenn fylgjast spenntir með bramboltinu. Er virkilega hægt að byggja brú milli alþjóðlegs viðskiptafyrirtækis og hefðbundins lífs í litlu fiskimannasamfélagi?

,,Að opna afskekktasta veitingahús í heimi á stað sem mörg láta sig aðeins dreyma um að heimsækja, var brjálað ævintýri og stórkostleg reynsla. Ég vona að heimildarmyndin sýni hvernig við unnum með að rannsaka staðbundna matarmenningu og innleiða hana í allt öðruvísi nútíma matargerðarstíl. Það koma tiltölulega fáir á KOKS í Grænlandi, en heimildarmyndin gefur áhorfendum Viaplay tækifæri til að upplifa ævintýrið í nærmynd, segir Poul Andrias Ziska, yfirmatreiðslumaður á KOKS.Heimildarmyndin er skemmtileg og heiðarleg frásögn um allt að því ómögulegt verkefni og opnar glugga inn í einstakt samfélag sem áhorfendur hafa fá tækifæri til að upplifa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
Fyrir 1 viku

Risarækjur með hvítlauk, engifer, kóríander og sweet chili

Risarækjur með hvítlauk, engifer, kóríander og sweet chili
Matur
Fyrir 1 viku

Meira næs með Tobbu Marinós

Meira næs með Tobbu Marinós
Matur
Fyrir 2 vikum

Mexíkósk pizza

Mexíkósk pizza
Matur
Fyrir 2 vikum

Penne pasta með sweet chilí sósu

Penne pasta með sweet chilí sósu
Matur
10.05.2023

Wok On styrkir Píeta samtökin

Wok On styrkir Píeta samtökin
Matur
09.05.2023

Íslendingar markaðssetja danska síld í Evrópu

Íslendingar markaðssetja danska síld í Evrópu
Matur
04.05.2023

Boða fagnaðarerindi – Vinsælt nammi er snúið aftur og netverjar halda vart vatni – „Ég gjörsamlega elska ykkur!“

Boða fagnaðarerindi – Vinsælt nammi er snúið aftur og netverjar halda vart vatni – „Ég gjörsamlega elska ykkur!“
Matur
19.04.2023

Íslenskir smáframleiðendur fá sviðið í Hagkaup

Íslenskir smáframleiðendur fá sviðið í Hagkaup