„Það er eitthvað bogið við þetta.“ sagði viðskiptavinur matvöruverslunarinnar Krónunnar í Facebook-hópnum Matartips um mynd sem hann deildi einnig í hópnum.
Á myndinni má sjá innpakkaða tomahawk-nautasteik sem hefur á sér tvo verðmiða. Á öðrum þeirra sendur var 3.412 krónur, en á hinum stendur „Síðasti séns! Verð nú: 4.449 kr. Ferskvara útrunnin. Verð áður: 6.356 kr.“ Líkt og glöggir lesendur taka eftir þá er talsverður mismunur á verðinu. Hringbraut greindi fyrst frá.
Færslan vakti mikla athygli, en ansi margir tjáðu sig um málið í ummælum fyrir neðan fréttina. „Það er engu líkara en að það hafi verið bílasali að verðmerkja.“ sagði einn netverji, og annar sagði „Eitthvað „IKEA“ scam í gangi kannski?“ og vísaði þar í hið svokallaða stóra IKEA mál.
Þá komu nokkrir Krónunni til varnar. Sumir vildu meina að ekki væri við hæfi að birta svona á Facebook-hóp, heldur ætti viðkomandi að láta starfsfólk verslunarinnar vita. Einn starfsmaður Krónunnar sagði til að mynda: „Afhverju þarf alltaf pósta hér? Sem starfsmaður í Krónunni mæli ég frekar með þú mætir í þá búð sem þú keyptir ef þér finnst þetta eitthvað bogið og þetta verður lagað hiklaust.“
Mesta athygli vakti þó þegar Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi – móðurfélags Krónunnar, lét til sín taka í þræðinum. Verður að teljast líklegt að Eggert sé fyrsti forstjóri skráðs fyrirtækis sem svarar þræði á Matartips tengdum málefni fyrirtækis hans. „Það hefur einhver grínisti fært miða á milli – svona gerir Krónan ekki,“ sagði Eggert ákveðinn.