Hanna Þóra byrjaði á sinni ketó vegferð fyrir 950 dögum og segir þennan tíma hafa verið ótrúlega magnaðan og lærdómsríkan í alla staði. Hún deildi nýlega með okkur hvað hún borðar á venjulegum degi.
Hér deilir hún uppskrift að jógúrt boosti fyrir alla fjölskylduna sem er fullkomið að gera um helgar.
Boost
100 g grísk jógúrt
Frosin hindber eða önnur frosin ber
1 tsk. Stevíudropar (vanillu– passa vel með hindberjabragðinu)
2 dl klakar
3 msk. rjómi
Toppur
Nokkur ber (hindber, jarðarber, bláber)
Uppáhaldssykurlausa nammistykkið ykkar
Aðferð
Blandið hreinu grísku jógúrtinni saman við klaka, hindber og sætu eftir þörfum.
Bætið smá rjóma saman við til að þynna og auka fituna. Mér finnst vanillu-stevíudropar passa einstaklega vel með, en einnig er hægt að nota sætu að eigin vali og bæta örlitlu af vanilludropum út í.
Blandið vel saman í blandara þar til klakarnir eru fullkomlega blandaðir við jógúrtina og berin.
Setjið í fallegt glas eða skál og toppið með nokkrum berjum að eigin vali.
Ég skar niður hálft Raspberry cheesecake stykki frá GoodGood og setti ofan á.
Þetta minnir mig helst á góðan, léttan bragðaref og passar vel með sem spari jógúrtskál eða í fallegan brunch.
Skálin er lang best ísköld beint úr blandaranum.
Ef þið viljið bjóða gestum upp á skálina er tilvalið að vera tilbúin með botninn í glösunum, búin að skera niður það sem fer á toppinn og blanda svo jógúrtina rétt áður en þið berið fram þetta góðgæti.