Það er tilvalið að bjóða þínum nánustu í páskabröns og njóta þess að eiga góð stund saman. Ekki er verra að grípa í spil, fela marglit páskaegg í garðinum eða búa til heimagert bingó eftir matinn.
1 bolli hveiti
1½ tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
1 bolli mjólk
1 egg
1 msk. brætt smjör
1 tsk. vanilludropar
Bananar
Alls konar góð ber
Flórsykur
Smjör
Súkkulaðismjör
Síróp svo eitthvað sé nefnt
Byrjið á að hræra saman í skál hveiti, lyftidufti og salti.
Bræðið smjörið og leyfið því aðeins að kólna áður en þið bætið því saman við hveitiblönduna ásamt mjólk og eggjum.
Hrærið vel saman.
Steikið pönnukökurnar upp úr smjöri við miðlungshita uns þær taka að gyllast.