Kristín Sif Björgvinsdóttir, afreksíþrótta- og útvarpskona, deildi nýlega með okkur hvað hún borðar á venjulegum degi. Hér deilir hún uppskrift að gómsætum fylltum paprikum.
Sjá einnig: Þetta borðar Kristín Björgvins á venjulegum degi
Fylltar paprikur að hætti Kristínar Björgvins
Hráefni
- 4-6 paprikur (alls konar litir)
- Nautakraftur
- 2 dósir af hökkuðum tómötum
- Nýrnabaunir í chilisósu
- Taco-krydd
- Óreganó
- Salt og pipar
- 5% nautahakk fra B.jensen
Aðferð:
- Set í crock pot með nautakrafti, dós af hökkuðum tómötum, óregano, salti og pipar.
- Leyfi þessu að eldast á meðan ég er i vinnunni.
- Þegar ég kem heim bæti ég við annarri dós af tómötum, nýrnabaunum í chilisósu og smá taco-kryddi.
- Elda þetta aðeins lengur í potti.
- Set paprikurnar í eldfast form og fylli þær með kjötblöndunni.
- Set smá ost yfir og Olio Nitti ólífuolíu.
- Inn í ofn í 15-20 mínútur á 180-200 gráðum. Ber þetta fram með hrísgrjónum, salati og sýrðum rjóma.