Una Guðmundsdóttir mælir með léttum og bragðmiklum grænmetisrétti í súldinni sem nú herjar á landsmenn. „Hollur réttur sem einfalt er að útbúa og tilvalið er að nýta grænmetið í ísskápnum sem er á siðasta séns. Mér finnst gott að bera núðlur, hrísgrjón eða jafnvel góðar baunir fram með réttinum.“
Taílenskur karrýréttur
1 msk. kókosolía
300 g gulrætur
1 paprika rauð
½ paprika, appelsínugul
½ brokkólíhaus
1 hvítlauksrif
1 laukur
2 msk. rautt karrýmauk
1 msk. sojasósa
400 g kjúklingabaunir
500 ml kókosmjólk
2 msk. kókósmjöl, gróft
Ferskt kóríander
Kókosflögur
(Núðlur, hrísgrjón eða baunir að vild)
Byrjið á að skera gulræturnar niður í þunnar sneiðar og laukinn og paprikuna smátt.
Skerið brokkólíið gróflega niður.
Mér finnst best að rífa hvítlaukinn á fínu rifjárni.
Seikið grænmetið á pönnu upp úr kókosolíu.Skolið kjúklingabaunirnar vel með köldu vatni og bætið þeim saman við grænmetið á pönnunni.
Hellið kókosmjólkinni saman við og látið malla vel saman við vægan hita.
Að lokum er rauða karrýmaukinu bætt saman við ásamt sojasósunni og öllu leyft að malla vel saman í um 20-30 mínútur. Stráið kókosflögum og fersku kórí-anderi yfir áður en þið berið fram.
Bæði gott að bera fram eitt og sér í skál en einnig upplagt að sjóða núðlur með, spæla egg yfir þær (eggjanúðlur) eða hrísgrjón.