Flest ferskt krydd eins og kóríander og steinselja kemur í plastbökkum. Kryddið geymist ekki vel í þeim sökum raka. Besta leiðin til að lengja líftíma kryddsins (virkar fyrir salat líka) er eftirfarandi:
1. Skolið og þerrið vel. Til dæmis í salatvindu. Eða með eldhúspappír. Engan raka, takk!
2. Fjarlægið öll skemmd lauf, því að þau skemma út frá sér.
3. Rúllið kryddinu upp í eldhúspappír – stilkana öðrum megin. Varist að setja of mikið í hverja rúllu. 4. Setjið pappírinn í loftþétt box eða ziplock poka og geymið í kæli. Ef um salat er að ræða er það sett hreint og þurrt í poka eða loftþétt box með eldhúspappír í botninn til að draga í sig raka.
Basilunnendur athugið!
Aðrar reglur gilda um basilíku sem þolir illa kulda – hún geymist best við stofuhita – stilkurinn ofan í vatni og poki yfir laufin. Best er þó að kaupa hana í potti og geyma úti í glugga – athugið að ekki má liggja vatn á rótum hennar. Vökvið oft og lítið.