Salathúsið ehf. hefur ákveðið að innkalla Þristamús vegna vanmerkts ofnæmis- og óþolsvalds en varan inniheldur gerlisneyddar eggjarauður.
Um er að ræða lotur með síðasta neysludegi fyrir 21. janúar, 2022
Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunnar.
Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru með síðasta neysludegi fyrir 21. Janúar, 2022 eru beðnir um að skila henni í viðkomandi verslun eða beint til Salathússins, Sundagörðum 10, 104 Reykjavík.
ATH innköllunin á eingöngu við um Þristamús með síðasta neysludegi fyrir 21.1.2022.
Fyrir þá sem ekki hafa ofnæmi fyrir eggjum er varan örugg.