fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Guðdómlega ljúffengar andabringur með jólaívafi

Sjöfn Þórðardóttir
Sunnudaginn 12. desember 2021 15:43

Andabringur eru sælkeramatur sem bráðna í munni með ljúffengu meðlæti./Ljósmyndir Hildur Rut Ingimars

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Önd nýtur vaxandi vinsælda hér á landi á hátíðarborði landsmanna enda er öndin sælkeramatur borin fram með meðlæti sem bráðnar í munni.

Hildur Rut Ingimars lífsstíls- og matarbloggari á Trendnet ætlar að halda fyrstu jólin heima með fjölskyldu sinni og er að prófa sig áfram með jólamatinn. Hún prófaði á dögunum franskar andabringur með steiktum kartöflum, kantarella sveppasósu og rósakáli með rjóma og parmesan sem heillaði hana upp úr skónum. „Þar sem við ætlum að halda fyrstu jólin heima þetta árið þá langar okkur að búa til nýjar hefðir og elda eitthvað sem við erum ekki vön að borða á jólunum. Við erum mjög spennt fyrir önd og ég prófaði andabringur frá Vallette á sunnudagskvöldið. Vá hvað þær eru ljúffengar og verða því líklegast í matinn á aðfangadagskvöld,“, segir Hildur Rut. Henni fannst til að mynda mjög gott að bera fram öndina waldorfsalati og algjörlega ómissandi að steikja kartöflurnar upp úr andafitunni. „Rósakál með rjóma og parmesan setur punktinn yfir i-ið og allt rennur þetta svo ljúflega niður með ljúffengu rauðvíni eða því sem hverjum og einum finnst best að bara öndina saman við,“segir Hildur Rut og er farin að hlakka mikið til að elda jólamatinn á aðfangadagskvöld.

Hildur Rut deilir hér með lesendum uppskriftinni af öndinni ásamt hátíðarmeðlætinu.

Andabringur og meðlæti með jólaívafi

Fyrir 2-3

Andabringur
1 frosin andabringa frá Vallette
Salt og pipar
Ferskt timían
Ferskt rósmarín

Villibráðarsósa
1 dl þurrkaðir kantarella sveppir
Smjör til steikingar
1 tsk. smátt skorið ferskt rósmarín og timían
1 ½  msk. smjör
3 msk hveiti
1 ½ dl vatn
2-4 tsk. andakraftur frá Oscar
1 tsk. púðursykur
Salt og pipar
2 dl mjólk
1 dl rjómi

Rósakál
5 dl ferskt rósakál
Smjör til steikingar
Salt og pipar
½ dl rjómi
½ dl rifinn parmigiano reggiano

Kartöflur eftir smekk.

Aðferð

Andabringur

  1. Skerið tígla í fituna á andabringunni og passið að skera ekki ofan í kjötið.
  2. Hitið pönnu og steikið andabringuna með fituna niður í 7-9 mínútur eða þar til fitan er orðin stökk. Ausið fitunni af pönnunni jafnóðum og notið til að steikja kartöflurnar.
  3. Snúið andabringunni við og steikið í 1-2 mínútur.
  4. Saltið og piprið eftir smekk. Setjið ferskt rósmarín og timían á andabringuna og klárið eldunina í ofninum í 12-15 mínútur við 180°C. Gott er að nota kjöthitamæli en kjarnhitinn á að vera 60 gráður. Andabringurnar mega alls ekki vera of mikið eldaðar því þá eru þær ekki góðar.
  5. Leyfið kjötinu að hvíla í 10-15 mínútur og njótið.

Villibráðarsósa

  1. Skolið þurrkuðu kantarella sveppina og látið þá liggja í bleyti samkvæmt leiðbeiningum.
  2. Steikið þá upp úr smjöri og bætið við fersku timían, rósmarín, salti og pipar eftir smekk. Takið þá til hliðar.
  3. Bræðið smjör og bætið hveiti saman við. Hrærið í brauðbollu.
  4. Bætið vatni saman við og hrærið þar til blandan er orðin þykk og mjúk.
  5. Bætið andakrafti, púðursykri, salti og pipar og hrærið vel saman.
  6. Hellið mjólk og rjóma útí og blandið kantarella sveppunum saman við. Þynnið sósuna með rjóma og kryddið eftir smekk.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa