fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Matur

Þess vegna heitir djöflaterta djöflaterta

DV Matur
Mánudaginn 4. október 2021 14:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Djöflatertan frá Kristjánsbakaríi hefur lengi verið vinsæl. Uppskriftin er upprunaleg og er löguð frá grunni í framleiðslunni. Hún er með sérstaklega þykku kremi, sem er létt í sér og með íslensku smjöri.

Djöflatertan á sér orðið nokkuð langa sögu. Á 18. öld var farið að tala um kökur og tertur, með dökku og þykku súkkulaði, sem syndugar því þær voru svo ómótstæðilegar. Upp frá því kom nafnið djöflaterta fram á sjónarsviðið.

Tertan varð þó fyrst almennilega vinsæl um aldamótin 1900. Þá birtist uppskiftin af tertunni í fyrsta skipti í bandarískri matreiðslubók sem heitir Mrs.Rorer’s New Cookbook eftir Sarah Tyson Rorer.

Í uppskriftinni var meira magn af súkkulaði en fólk var vant og hún var dekkri á lit en hefðbundin súkkulaðikaka. Stundum er bætt við viðbótar matasóda sem eykur sýrustigið og gerir kökuna enn dekkri að lit.

Skemmst er frá því að segja að uppskriftin sló heldur betur í gegn og varð á örskotstundu gríðarlega vinsæl á heimilum um öll Bandaríkin. Þaðan fór hún sigurför um heiminn.

Uppskrift af fyllingu:

150 gr. brætt smjörlíki

1 bolli kakó

4 bollar flórskykur

1/2 bolli heit mjólk

2 msk sterkt kaffi

Bræddu smjörlíkið í pott. Hitaðu mjólkina í öðrum potti eða settu mjólkina í glas og inn í örbylgjuofn.

Taktu fram skál og settu kakó, flórsykur og kaffi, smörlíkið, og heitu mjólkina og blandaðu vel saman.

Takið tvo Djöflatertubotna og leggið annan þeirra á stóran kökudisk. Setjið fyllinguna ofan á botninn og leggið síðan hinn botninn ofan á.

Djöflatertan er svo borinn fram með rjóma eða ís

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa