fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Sjúkdómur sonarins varð kveikjan að jurtaástríðunni

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 30. janúar 2021 18:00

Sigurlaug Knudsen. Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

SONO matseljur er grænmetis- og vegan matarþjónusta og „pop-up“ veitingastaður. Kröftugu konurnar á bak við SONO matseljur eru Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir.

Það mætti lýsa réttum SONO matselja sem hollum partímat sem lítur út eins og listaverk. Mottó Sigurlaugar er „let food be thy medicine“ og segir hún að hugmyndin að SONO matseljum komi út frá því.

„Þetta er um tólf ára gamalt kerfi hjá mér, út frá því að sonur minn varð veikur. Svona kemur oft út frá einhverjum tragedíum, þar sem maður verður fyrir reynslunni,“ segir hún.

Sonur hennar varð fárveikur af sjálfsofnæmissjúkdómi. „Mjög alvarlegum og var að berjast fyrir lífi sínu í langan tíma. Svo varð hann betri fyrir tilstilli læknisfræðinnar og hann kom heim, en allt í einu hrakaði honum svakalega, og þá fórum við að hugsa um hver orsakavaldurinn væri. Við byrjuðum á því að kíkja á matinn,“ segir Sigurlaug.

Mjólkin hafði áhrif

„Við höfðum ávallt borðað hollt þannig að við hugsuðum að þetta gæti verið eitthvað í matnum. Það er alltaf talað um mjólk, hveiti og sykur, og við byrjuðum að fjarlægja það fyrsta. Það reyndist vera akkúrat málið, því þá sáum við honum strax líða betur. Þá var náttúrulega ekkert um annað að ræða en að þetta væri það. Enda ekki skrýtið því við vorum að fá mjólk beint frá bónda, ógerilsneydda. Þess vegna voru áhrifin svona áberandi,“ segir Sigurlaug og bætir við að út frá þessari reynslu hafi ástríðan fyrir hollri matargerð byrjað fyrir alvöru.

„Ég fór að sjá hvaða áhrif mismunandi matur hafði á hann, hegðun hans og sjúkdóminn. Út frá því fór ég að kafa dýpra í það sem ég hef alltaf haft áhuga á: jurtir, jurtafræði, heilsusamlegt líferni, ræktun og svona lagað. Ég fór að taka þetta skrefinu lengra og kanna hvaða jurtir væru góðar fyrir manneskju með sama sjúkdóm og hann. Þá kynntist ég alls konar nytsamlegum jurtum. En þá stóð ég frammi fyrir öðru vandamáli. Ég horfði á þessar jurtir og þetta pínulitla barn og hugsaði með mér, hvernig kem ég þessu eiginlega ofan í hann? Ekki gat ég látið hann japla á vallhumli,“ segir Sigurlaug og hlær.

„Þá voru góð ráð dýr og ég byrjaði í tilraunastarfsemi að setja jurtirnar í matinn, og það virkaði sem slíkt. Hann varð betri, en það spilaði margt inn í, eins og reglubundið líferni og að hugsa vel um líkamann. Í dag liggur sjúkdómurinn niðri en við vitum ekki hvort hann blossar upp aftur, en í dag er hann stálhraustur.“

Notar jurtir mikið

Sigurlaug segir að jurtirnar hafi fylgt henni síðan þá í gegnum lífið. Eins og þegar hún fær kvef, er með hausverk eða eitthvað annað bjátar á.

„Þá leita ég alltaf til jurtanna og alltaf geta þær hjálpað mér. Og þaðan kemur þetta. Ég hef ætíð verið heltekin af mat í öllum formum. Þetta varð bara sjálfkrafa næsta skref, að taka þessa nálgun á matinn. Að blanda lækningajurtum við mat.“

Matseljurnar kynnast

Sigurlaug og Hildigunnur eru báðar tónlistarmenn og kynntust í gegnum tónlistina.

„Við vorum oft að vinna saman. Þegar maður situr á æfingum og þarf að bíða leiðist manni óskaplega, og þá hef ég oft tekið með mér einhverja matarbók eða uppskriftabók, og við Hildigunnur sátum oft hlið við hlið. Þarna kviknaði þessi sameiginlegi áhugi okkar, við fundum hvor aðra í okkur sjálfum og fórum að kafa meira í þetta. Fórum að bera saman bækur okkar og út frá þessu varð samstarf okkar til,“ segir Sigurlaug.

Það er að verða komið ár síðan þær byrjuðu að vinna saman og viðbrögðin hafa farið fram úr björtustu vonum þeirra. Þær vissu að þær væru með eitthvað í höndunum eftir fyrstu „pop-up“ opnunina, sem þær voru með á Flateyri.

„Þetta varð að einhverju ævintýri sem sprakk í höndunum á okkur. Við höfðum ekki hugmynd um að viðbrögðin yrðu svona. En það er greinilega eftirspurn eftir hollum jurtaog grænmetismat.“

Sigurlaug segir að það sé einnig meiri eftirspurn eftir grænmetis- og vegan fæði, þar sem sífellt fleiri eru farnir að minnka við sig kjötneyslu og neyslu á öðrum dýraafurðum, fyrir heilsuna, umhverfið og dýrin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa