fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Matur

Una í eldhúsinu býður til ítalskrar veislu

Ritstjórn DV
Laugardaginn 25. júlí 2020 14:00

Mynd/Una

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Una Guðmundsdóttir skellir hér í ítalska veislu fyrir fjölskylduna. Ekki er verra að gera tvöfalda uppskrift og frysta, til þess að eiga þegar góða veðrið kitlar og eldhúsbrask er minna aðlaðandi.

Kjötbollur og dásamlega bragðgóð pastasósa

Einn af mínum uppáhaldsheimilisréttum er spagettí og finnst öðrum fjölskyldumeðlimum það alltaf jafn gott. Ég breyti gjarnan til og útbý gómsætar kjötbollur, í stað þess að hafa hakk í sósu. Hérna kemur uppskrift að góðum heimilismat, spagettíi með heimagerðri sósu, kjötbollum og síðast en ekki síst heimalöguðum hvítlauksbrauðbollum.

Kjötbollur

Fyrir 4

500 g nautahakk

½ tsk. hvítlaukskrydd

½ tsk. salt

1/3 tsk. pipar

2 dl spínat

½ dl steinselja

Ritz-kex

2 egg

Olía til steikingar

Byrjið á því að taka um 20 Ritz-kex og setja í matvinnsluvél.

Setjið hakk í skál ásamt eggjunum og ritz-kexinu og hnoðið vel saman.

Saxið spínat og steinselju niður örfínt og blandið saman við hakkið.

Kryddið hakkblönduna vel með, salti, pipar og hvítlaukskryddi.

Hitið pönnu með olíu og myndið litlar kúlur úr hakkblöndunni og steikið á pönnunni þar til hliðarnar eru farnar að brúnast. Setjið næst kjötbollurnar í eldfast form og inn í ofn á um 200 gráður í um 8-10 mínútur.

Myndir/Una

Pastasósa

1 dós tómatmauk (paste)

10-15 piccolo-tómatar

1 tsk. oreganó

1/3 tsk. salt

2 hvítlauksrif, marin

1/3 tsk. pipar

1 dl vatn

1 dl söxuð basilíka

Blandið tómatmauki og vatni saman í pott og hrærið vel. Leyfið suðunni aðeins að koma upp.

Saxið niður piccolo-tómata og basilíku mjög smátt og blandið saman við.

Kryddið sósuna að vild, sumir vilja mikinn hvítlauk eða pipar, á meðan aðrir vilja hafa sósuna mildari.

 

Ítalskar brauðbollur

450 g hveiti

220 ml volgt vatn

2,5 tsk. þurrger

1 tsk. salt

5 msk. hvítlauksolía

Oreganókrydd

Smjör

Blandið saman volgu vatni og þurrgeri og hrærið blönduna vel saman. Setjið hveiti í skál og blandið gerblöndunni, saltinu og olíunni vel saman við.

Hnoðið deigið vel saman og leyfið því að hefast í um 45 mínútur.

Myndið litlar kúlur og setjið á ofnplötu (bökunarpappír undir). Bræðið smjör og penslið bollurnar með því og stráið oregano kryddi yfir.

Bakið bollurnar við 180 gráður í um 13-16 mínútur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa