Ég er oftast með puttana í mörgum verkefnum, en þessa dagana er ég að einbeita mér að fyrirtækinu mínu Náttúrusmiðjunni ehf. sem á vörumerkið ICEHERBS natural supplements. En það eru íslensk, náttúruleg bætiefni, sem ég vil meina að geri líf þitt betra og fallegra,“ segir Katrín Amni, sem sjálf leggur mikið upp úr náttúrulegum hráefnum.
„Verandi upptekin móðir á hlaupum þá kýs maður lífsstíl sem er í einhvers konar jafnvægi flesta daga og með dágóða orku. Vörurnar okkar eru allar náttúrulegar og innihalda einungis hreinar jurtir og náttúrulegar afurðir og koma í vegan hylkjum. Þannig að þetta er allt fallegt frá a til ö. Ofsalega gaman.“
Katrín segir að það séu engir tveir dagar eins hjá sér. „Ég er mikil A-manneskja og vakna alltaf snemma, alla daga vikunnar. Ég legg mikla áherslu á að byrja alla daga í engu stressi og trúi að það skili sér út í daginn og orkuna. Ég reyni eftir fremsta megni að koma dætrum mínum tveimur út í daginn að minnsta kosti smá zen-uðum, þótt það sé auðvitað stundum algjörlega steikt og ógerleg hugmynd.
Annars er morgunbolli á einhverju kaffihúsinu með kærastanum mínum eða vinkonu fáránlega solid byrjun á góðum degi. Dætur mínar eiga tvö heimili, hjá mér og svo hjá pabba sínum, þannig að mér finnst ég eiga tvö mjög ólík líf. Algerlega tveir heimar á milli vikna þegar dætur mínar eru hjá mér, eða hjá pabba sínum. Ég kann að meta þetta fyrirkomulag.“
„Ég er bara í flæðinu í þessu lífi. En eðlilega líður mér best þegar ég hlúi að mér á allan hátt og er mataræði þar engin undantekning. Ég aðhyllist hugmyndina um hófsemi í öllu og þá líka í mat, sem gerir mér það kleift að borða og drekka allt í heiminum, þó í hófi ef mig langar. Með árunum veit ég sjálf hvað fer vel í mig og hvað ekki og fylgi ég því bara minni eigin sannfæringu.
Hins vegar er sykurát eitthvað sem ég reyni að lágmarka eins og ég get og mæli ég með því við alla,“ segir Katrín, en sykurslenið er letjandi að hennar sögn.
Katrín segist ekki eyða miklum tíma í eldhúsinu nema kannski um helgar.
„Mér finnst rosalega gaman að græja eitthvað skemmtilegt um helgar þegar heimilið mitt fyllist af börnum – ég elska þegar dætur mínar eru með vinkonur sínar heima og þá er gaman að henda í pönnukökur og vöfflur, og ég elska að leggja fallega á borð og hugga mig. Þessi spurning fékk mig til að hugsa hvað eldamennska og það að borða góðan mat er félagslegt í alla staði, og helst það í hendur í hvernig mynstri þú lifir. Í dag bý ég ein með dætrum mínum tveimur og því er eldamennskan einföld!“
Hún segist sátt ef börnin hennar fái heimagerðan mat og grænmeti á kvöldin og allir séu heilsuhraustir. „Ég kýs frekar að eyða tímanum okkar saman í etthvað skemmtilegt, frekar en að standa yfir pottunum og elda mat sem börnunum er svo mögulega alveg sama um.“
„Þar sem áður fyrr, í svokölluðu fyrra lífi þegar ég var gift kona með eiginmann, börnin alltaf heima og þetta týpíska, formfasta heimilislíf, þá henti maður í þriggja rétta læti um helgar og fór upp í rúm með matreiðslubækurnar mega spenntur og slefaði yfir uppskriftum á Instagram.
Í dag er ég með minni kröfur og borða mögulega spínateggjahræru þrisvar í viku, eða fæ mér bara popp í kvöldmat ef mér sýnist og finnst það geggjað. Þarf kannski að opna umræðuna? Ég ætla að taka af skarið, allir þarna úti, bjóðið vinum ykkar í mat sem eru fráskildir, með eða ekki með börnin. Við getum ekki borðað popp í kvöldmat endalaust.“
Lax með grænu pestói, mozzarella, basilíku
Þessi grautur hefur gert alla hamingjusama sem hafa hann smakkað. Í hann er mikilvægt að vera villtur í dass-inu:
1 bolli hafrar eða tröllahafrar
3 msk. eða dass af chia-fræjum Lúka af bláberjum og / eða söxuðum eplabitum
Dass af (1-2 msk.) fræjum, hnetum og rúsínum – bara það sem þú átt.
Ég nota hörfræ, sólblómafræ, rúsínur
½ tsk. hlynsýróp (leyndarmálið mitt í eldhúsinu í flest)
3 dropar vanilludropar
Salt á hnífsoddi
Hálf teskeið kanill
Hitað að suðu. Hitinn lækkaður og látið malla við lágan hita í 5 – 10 mín.
Sett í skál.
Ísköld mjólk yfir – ég vel rísmjólk.
Örlítið dass af hlynsýrópi yfir.
Svo má setja hvað sem er yfir. Ég set ber og / eða banana.
Fyrir dætur mínar á ég alltaf kökuskraut sem ég set yfir hamingjugrautinn, sérstaklega um helgar. Það er rosa stemning, prófið!
Borðið hægt og fallega og brosið.
Morgunmatur Grænt te, chia / hafragrautur – stundum ekkert.
Millimál
Kaffi – kaffi gerir mig hamingjusama.
Hádegismatur
Algjörlega random, smoothie eða skál eða næs löns, þá vel ég oftast fisk.
Millimál
Alls konar og ekkert. Hnetur og ávextir.
Kvöldmatur
Spínat-eggjahræra kemur sterk inn þegar ég þarf bara að nærast. En annars vinn ég mest með fisk eða bakað grænmeti og kjúkling. Stundum popp, ef ég er mjög flippuð.