fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Matur

Þetta borðar Frosti á venjulegum degi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 11. maí 2020 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frosti Logason er stjórnmálafræðingur að mennt og fjölmiðlastjarna á daginn. Hann er þekktastur fyrir að sjá um útvarpsþáttinn Harmageddon á X-inu 977 en þar að auki er hann mikill matmaður.

Hefðbundinn dagur

„Ég starfa hjá fjölmiðlasamsteypunni Sýn, þar sem ég stýri útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu 977 á morgnana. Síðan vinn ég í innslögum fyrir Ísland í dag á Stöð 2 eftir hádegið. Þetta er mjög þægilegur vinnutími þar sem ég ræð mér mikið sjálfur þannig að í venjulegu árferði leyfi ég mér að fara talsvert mikið í ræktina og fer þá alltaf í World Class stöðina Laugar. Undir venjulegum kringumstæðum fer ég þangað einu sinni á dag og ég náttúrulega sakna þess mikið núna í þessu samkomubannsástandi,“ segir Frosti.

Frosti Logason gerir alveg klikkaða súrdeigssamloku.

Borðar ekki kjöt

„Mataræði mitt er svona frekar heilbrigt og hollt held ég. Ég borða ekki morgunmat því mér finnst gott að fasta til hádegis. Ég vil ekki vera saddur allan sólarhringinn heldur vill frekar leyfa meltingarkerfinu að fá smá frí inn á milli. Annars borða ég yfirleitt hádegismat í mötuneytinu niðri í vinnu. Þetta er heimsklassa veitingastaður sem er með sjúklega góðan en yfirleitt hollan mat. Fiskréttir eru þar í algjörum sérflokki og síðan eru alltaf góðir grænmetisréttir líka, sem er frábært af því ég borða ekkert kjöt,“ segir Frosti.

„Ég gríp mér síðan yfirleitt eina hrökkbrauðsneið og jógúrt í kaffitímanum ef ég er rosalega svangur. Á kvöldin nýt ég þess svo að búa með heimsins besta kokki en Helga Gabríela, konan mín, er rosalega dugleg að búa til eitthvað nýtt í eldhúsinu og það er yfirleitt eitthvað sem er frekar hollt líka. Ég er ekki mikið í eldhúsinu og elda þar hlutfallslega mjög sjaldan miðað við konuna mína. En ég get bjargað mér ef allt annað bregst. Síðan eru einn eða tveir réttir sem ég tel mig hafa góð tök á þannig að þegar ég elda þá finnst mér ég vera rosalega góður kokkur,“ segir Frosti.

„Uppáhaldsmaturinn minn er í rauninni bara allt sem konan mín eldar. Ég er sérstaklega hrifinn af öllum mexíkósku réttunum sem hún gerir og svo elska ég súrdeigspitsurnar hennar alveg sérstaklega mikið. Síðan er indverskur matur líka í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Frosti.

Frosti getur reddað sér í eldhúsinu.

Uppskrift sem er vinsæl á þínu heimili þessa stundina?

„Uppáhaldssamlokan mín sem ég get eldað sjálfur er Hancock-samlokan sem ég lærði að gera úti í Boston þegar Orri vinur minn var í námi þar. Hún heitir eftir einum af landsfeðrum Bandaríkjanna sem menn muna best eftir af því að undirskriftin hans á  Sjálfstæðisyfirlýsingunni var svo miklu stærri en allra hinna sem voru kannski frægari. Betri samloku er ekki hægt að hugsa sér en hún samanstendur af frábæru súrdeigsbrauði sem konan mín gerir, reyktum laxi, eggjahræru og rjómaosti. Þessu er síðan best að skola niður með nýkreistum appelsínusafa.“

Matseðill Frosta

Morgunmatur: 

Borða ekki morgunmat.

Hádegismatur:

Einhver góður grillaður eða ofnbakaður fiskur. Lax og þorskur er í sérstöku uppáhaldi.

Millimál:

Hrökkbrauð og jógúrt.

Kvöldmatur:

Mexíkóskt fajitas eða taco

Samlokan fræga.

Súrdeigssamloka Frosta

Uppskrift fyrir 2

Súrdeigsbrauð (skera sneiðar nægilega þunnt svo þær komist í brauðrist)
3 egg
1 dl fetaostur
1 rauðlaukur
1 Philadelphia-rjómaostur
200 g reyktur lax

Aðferð:

  1. Hrærið eggin saman við fetaost og saxið rauðlauk í litla bita út í eggjahræruna.
  2. Steikið eggjahræruna í hæfilega þunna ommilettu.
  3. Ristið brauð og smyrjið með vænu lagi af rjómaosti.
  4. Egg og lax sett á milli og samlokan er tilbúin
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa