fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Æsispennandi páskakaka fyrir alla lakkrísunnendur

DV Matur
Fimmtudaginn 9. apríl 2020 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gríðarlega girnileg páskakökuuupskrift, sem er frábær fyrir alla lakkrísunnendur birtist á matarblogginu Systrum í gær.

Systurnar sem sjá um matarbloggið þótti okkur algjör furða að þær hefðu aldrei bakað alvöru lakkrísköku. Eftir nokkrar tilraunir töldu þær sig hafa náð fram fullkominni lakkrísköku. Uppskriftina má lesa hér að neðan.

BOTNINN

  • 200 gr sykur
  • 75 gr smjör við stofuhita
  • 1 egg
  • 300 gr Ab-mjólk
  • 2 tsk vanilludropar
  • 200 gr af hveiti
  • 1 tsk matarsódi
  • 2 msk af RAW lakkrís duftinu frá Johan Búlow (fæst hér)*

KREMIÐ

  • 200 gr hvítt súkkulaði
  • 1 dl rjómi

AÐFERÐ VIÐ BOTNINN

  • Hitið ofnin við 160 gráður
  • Þeytið saman sykur, egg og smjör þar til það verður létt og hvítt á litinn
  • Bætið við Ab-mjólk og vanilludropunum ásamt lakkrísduftinu. ATH áður en þið setjið lakkrísduftið út í er best að reyna myrja það örlítið niður í aðeins fínna púður, það er hægt að gera þetta með bakhliðinni á skeið eða með morteli
  • Bætið öllum þurrefnunum saman við og hrærið
  • Færið degið yfir í eldfast mót (25 cm hentar vel) og setjið í ofninn í 40-55 mínútur

AÐFERÐ VIÐ KREMIÐ

  • Brjótið hvíta súkkulaðið niður í bita ofan í skál og hellið 1 dl af rjóma yfir
  • Setjið skálina í örbylgjuofnin í 20 sek, takið skálina út og hrærið mjög vel. Endurtakið þetta þar til súkkulaðið hefur bráðnað en passið að súkkulaðið hitni ekki of mikið
  • Setjið lok eða plast yfir skálina og leyfið súkkulaðinu að kólna í a.m.k klukkutíma
  • Eftir að súkkulaðið hefur kólnað má þeyta það. Þeytið þar til það verður hvítt á lit og loftþétt. Eftir það má smyrja því á kökuna og njóta!
  • Til þess að toppa kökuna er hægt hana með páskakúlunum frá Johan Búlow sem kom virkilega vel út. Þær fást hér í Epal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa