Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir skipti fylgjendum sínum í tvo hópa þegar hún spurði hvort aðferð sín við að drekka kaffi væri siðlaus eða snilld.
Sunneva greindi frá því í Story á Instagram að hún drekkur morgunkaffið með röri til að vernda tennurnar. Hún framkvæmdi litla könnun þar sem hún spurði fylgjendur sína út í aðferðina.
Um 60 prósent svarenda sögðu aðferðina vera snilld, en tæp 40 prósent sögðu hana siðlausa.
Hvað segja lesendur, siðlaust eða snilld?