Ert þú einn af þeim sem birgðir þig upp af kjúklingabaunadósum vegna Covid-19 faraldsins en hefur samt aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af kjúklingabaunum?
Vissir þú að það er hægt að búa til gómsætar vegan súkkulaðibitakökur úr kjúklingabaunum?
Já ég sagði kjúklingabaunum.
Í staðinn fyrir egg notarðu kjúklingabaunir. Og þær eru sjúklega góðar. Það sem meira er. ÞAÐ MÁ BORÐA DEIGIÐ HRÁTT (ef þú sleppir hveitinu)!
Uppskriftin er svona:
1 dós niðursoðnar kjúklingabaunir
120 gr hveiti (má sleppa ef þú ætlar að borða deigið hrátt. Það dæmir þig enginn.)
150 gr púðursykur
3 matskeiðar kókosolía (má nota bráðið smjör eða matarolíu)
1 matskeið vanilludropar
½ teskeið salt
½ teskeið matarsódi
1 teskeið eplaedik
130 gr niðurskorið dökkt súkkulaði
Ofninn hitaður í 180°C. Skolaðu kjúklingabaunirnar í sigti og settu í matvinnsluvél ásamt smjöri og vanilludropum. Láttu matvinnsluvélina brjóta baunirnar vel niður í mjúkt deig. Bættu við sykri, hveiti, matarsóda og ediki og blandaðu vel þar til úr verður deig. Síðast skaltu bæta súkkulaðinu út í og púlsa svo þær blandist vel.
Formaðu deigið í ca. 16 kúlur og þrýstu á bökunarplötu með bökunarpappír. Þær fletjast illa út sjálfar. Bakaðu uns sprungur myndast í yfirborði og endarnir eru þurrir, eða í um 18-20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en þær eru bornar fram.
Ef þú vilt geyma kökurnar er mælt með að frysta þær frekar en að geyma í boxi. Þá þarf bara að láta þær standa við herbergishita í um 30 mínútur eða stelast í þær ískaldar beint úr frysti. Uppskriftin kemur af vefnum detoxinista.com