Royal-búðingur er sennilega sá eftirréttur sem fylgt hefur þjóðinni hvað lengst.
Royal tilkynnti það fyrir stuttu að von væri á nýjum Royal-búðing í hillur matvöruverslana á næstu dögum. Þetta er fyrsta nýja bragðtegundin er nýja bragðtegundin til að koma í áratugi frá Royal. Um er að ræða hið vinsæla saltkaramellu bragð.
Royal greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Íslendingar virðast vera æstir í nýja búðinginn og hafa fjölmargir skrifað við færsluna.
„Ómægad ég hef sjaldan verið spenntari!“
„Þetta verð ég að smakka.“
„VIÐ VERÐUM AÐ SMAKKA ÞENNAN!!!“
Royal segir að búðingurinn ætti að birtast í hillum verslana á næstu dögum.
Hvað segja lesendur um nýja Royal-búðinginn, ætlar þú að smakka?