Leikkonan Gwyneth Paltrow fer yfir allt sem hún borðar og drekkur á venjulegum degi í myndbandi með Harper‘s Bazaar. Gwyneth hugar vel að heilsunni og á lífsstílsfyrirtækið Goop sem selur allskonar heilsutengdar vörur.
Gwyneth byrjar daginn á því að skola munninn með olíu og drekkur síðan eitt til tvö glös af vatni. Síðan drekkur hún kaffi, vekur börnin, fer með þau í skólann og fer í ræktina. Fyrsta máltíðin er grænn þeytingur með fitu og próteini.
Hún fer ítarlega yfir allan daginn í myndbandinu hér að neðan.