fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Jóhannes Gleðipinni elskar ítalska heimilisréttinn Saltimbocca – Eins og bjúgu og uppstúfur á Íslandi

Erla Hlynsdóttir
Laugardaginn 8. ágúst 2020 18:00

Jóhannes Ásbjörnsson einn eigandi Fabrikunnar Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhannes Ásbjörnsson byrjaði ungur að gera tilraunir í eldhúsinu. Hann bjó um skeið á Ítalíu og þá snarjókst áhuginn á matreiðslu.

Jóhannes Ásbjörnsson, oftast kenndur við Hamborgarafabrikkuna, er einn af aðaleigendum Gleðipinna sem reka fjölda veitingastaða á borð við Keiluhöllina, Shake&Pizza, Eldsmiðjuna og Pítuna í Skipholti.

„Ég var mjög ungur þegar áhuginn á matargerð vaknaði og var alltaf duglegur að nota afganga úr ísskápnum heima hjá mömmu og pabba til að prófa mig áfram. Ég notaði allt sem til var og blandaði saman, til dæmis í eggjakökur og pastarétti. Svo tók grilltímabilið við, og þegar ég fór í útilegur þá vakti það mikla athygli að ég var með allan kryddlagerinn meðferðis og var sá sem fyllti sveppina með osti og skar niður grænmeti með steikinni. Menn voru að vinna með forkryddað kjöt á einnota grilli en ég var að sjálfsögðu með ferðagasgrill, stoltur grillari,“ segir hann.

Sér um eldamennskuna á heimilinu

Jóhannes, eða Jói eins hann er alltaf kallaður, bjó um skeið á Ítalíu og þá snarjókst mataráhuginn. „Ég fékk þar alveg sæg af hugmyndum og féll fyrir nýju og spennandi hráefni eins og hráskinku og Mozzarella-osti. Þar lærði maður líka að fá en góð hráefni eru yfirleitt líklegri til að skapa frábæran mat. Ítalir eru alveg með þetta þegar kemur að virðingu fyrir matnum, bæði hvernig hann er eldaður og hvernig hans er neytt. Í dag starfa ég við mat daginn út og inn. Ég sé alfarið um eldamennskuna á mínu heimili en frúin og krakkarnir fá oftast að velja hvað er í matinn,“ segir Jói.

Óhræddur við nýjan mat

Hann játar þó að í seinni tíð borði fjölskyldan töluvert af take-away af veitingastöðunum sem Gleðipinnar reka. „Bæði vegna þess að þeir eru fjölbreyttir og góðir, og eins þarf maður sífellt að vera að smakka og taka út matinn sem maður er að auglýsa og selja sjálfur. Ekki spillir fyrir að nú er hægt að fá matinn frá öllum stöðunum okkar heimsendan, bæði með Hreyfli og eins með Aha. Ég hef alltaf borðað allan mat og aldrei verið hræddur við að prófa eitthvað nýtt. Ég fer alveg óhræddur á litla lókal staði erlendis og er alltaf að safna í sarpinn hugmyndum að nýjum réttum, straumum og stefnum.“

 

Matseðill Jóa

Morgunmatur

Kaffibolli. Borða aldrei neitt fyrr en í hádeginu.

Hádegismatur

Yfirleitt tekinn á veitingastöðunum okkar. Salat á Saffran, borgari á Fabrikkunni eða jafnvel píta.

Kvöldmatur

Mjög misjafnt, en yfirleitt léttari máltíðir framan af viku og svo þyngist róðurinn þegar líður að helginni. Við grillum yfirleitt um helgar og þá helst gott nautakjöt eða pizzur á pizzasteini. Mæli sérstaklega með Blackbox pizzunum sem fást í Krónunni.

 

Saltimbocca – uppskrift

Saltimbocca. Mynd/aðsend

Einn af uppáhaldsréttum fjölskyldunnar er ítalski kjúklingarétturinn Saltimbocca. „Þetta er þekktur heimilisréttur á Ítalíu, soldið eins og bjúgu og uppstúfur á Íslandi. Það er ákveðin handavinna að undirbúa hann en hann slær alltaf í gegn,“ segir Jói.

Kjúklingalundir

Fersk salvíublöð

Parmesan-ostur

Hráskinka

Sjávarsalt

Íslenskt smjör

Hvítvín

Þerrið og snyrtið kjúklingalundirnar

Notið ostaskera til að búa til langar sneiðar úr parmesan-ostinum og leggið sneið ofan á hverja lund

Leggið hráskinku ofan á parmesanostinn (1 sneið dugir á ca. 3 lundir). Leggið salvíublað ofan á hráskinkuna og festið saman með tannstöngli. Hitið smjör á pönnu, setjið vel af salti í smjörið, og byrjið að steikja þegar smjörið er „þagnað.“

Steikið í ca. 2-3 mínútur á hvorri hlið á mjög heitri pönnu.

Þegar búið er að steikja allar lundirnar er töluvert af gómsætu gumsi á pönnunni.

Skvettið þá ca. dl af hvítvíni á pönnuna, hrærið og skafið gumsið og hellið yfir lundirnar á fati.

 

Meðlæti

Með þessu finnst Jóa best að bera fram ferskt og einfalt salat, klettasalat, mozzarella-ost, kirsuberjatómata og góða ólífuolíu.

Klettasalat

Mozzarella-ostur (úr Bufflamjólk ef hann fæst)

Kirsuberjatómatar

Góð ólífuolía

 

Þessi umfjöllun birtist fyrst í helgarblaði DV 31. júlí.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa