KFC á Íslandi forsýnir nýjan borgara á stað sínum í Sundagörðum á föstudaginn klukkan 11:00.
Borgarinn kallast „EKKI kjúklingaborgari“ og um er að ræða borgara úr plöntum sem hentar bæði grænmetisætum og grænkerum.
KFC svarar spurningu netverja á Facebook um hvort sósan á borgaranum sé vegan og segir að ef beðið er um vegan-mæjónes þá sé borgarinn vegan. Hins vegar er það ekki ósjálfrátt vegan-mæjónes á borgaranum og viðskiptavinir þurfa að biðja um það sjálfir. Það er því gott að hafa það í huga fyrir þá grænkera sem ætla að smakka.
„Original EKKI kjúklingaborgarinn fellur undir vegetarian-mataræði en þó er það aðeins mæjóið sem inniheldur dýraafurðir. KFC býður því upp á vegan-mæjó í stað þess hefðbundna sé þess óskað og þá er borgarinn orðinn vegan. Þess er síðan gaumgæfilega gætt að hráefni, áhöld og steikingarolía komist hvergi í snertingu við önnur matvæli og þannig verður ekkert krossmit,“ segir í svari KFC á Íslandi.
„Af þessu tilefni skal áréttað að frönsku kartöflurnar á KFC eru vegan (steiktar í sömu pottum og EKKI kjúklingaborgarinn), tómatssósan líka, Hot Sauce, BBQ-sósan, salsa-sósan og maísinn. Því ættu allir að geta notið saman á KFC.“
KFC merkir síðan tilkynninguna á borgaranum með myllumerkinu #Kfcfyriralla.
KFC selur EKKI kjúklingaborgarann á sölustöðum sínum víðsvegar um heiminn og hefur nú Ísland bæst við þann lista.
Hvað segja lesendur, á að fara á föstudaginn og smakka?