Janúar hefur undanfarin ár verið tileinkaður grænkera lífsstílnum og gengur þá gjarnan undir nafninu Veganúar. Því er upplagt að prófa sig áfram í eldhúsinu. Blaðamaður rakst á þessar skemmtilegu grænkera útgáfu af vinsælum sætindum sem innihalda óvenjuleg hráefni sem seint hafa verið tengd við sætindi. Þetta eru baunir. Já, þú last rétt, baunir í sætindum. Komdu fjölskyldu og vinum skemmtilega á óvart með baunasúkkulaðibitakökum eða baunabrúnkum og sjáðu svipinn á þeim þegar þú tilkynnir þeim hvað þeir voru í raun að borða. Ekki vera prinsessan á bauninni, baun er betri í köku en í bala. Ekki skemmir svo fyrir að báðar þessar uppskriftir eru sérlega ljúffengar og því ætti enginn að þurfa að hrauna eða bauna yfir þær.
Súkkulaðibitakökur úr kjúklingabaunum
Höfundur uppskriftar: Detoxinista
1 ½ bolli kjúklingabaunir (ein dós)
½ bolli hafrahveiti*
¾ bolli kókossykur
3 msk. kókosolía (bráðnuð)
1 msk. vanilludropar
½ tsk. salt
½ tsk. matarsódi
1 tsk. eplaedik
¾ bolli dökkir súkkulaðidropar
*Hafrahveiti má búa til með því að setja hafra í matvinnsluvél eða blandara og vinna svo saman þar til hveitiáferð næst
Aðferð:
- Hitaðu ofn í 175 gráður og settu bökunarpappír á ofnplötu. Settu kjúkklingabaunir, kókosolíu og vanilludropa í matvinnsluvél þar til allt er vel blandað saman. Bættu þá við kókossykri, hafrahveiti, salti, matarsóda og ediki og blandaðu þar til það er kekkjalaust og mjúkt deig hefur myndast.
- Bættu þá súkkulaðidropum rólega saman við með sleikju eða sleif. Notaðu matskeið til að setja deig á ofnplötu og flettu út með blautum fingrum. Bakaðu þar til sprungur myndast ofan á kökunum og jaðrar eru þurrir, eða um 18–20 mínútur. Leyfðu kökunum að kólna alveg áður en þær eru bornar fram.
Svartbaunabrúnkur
Höfundur uppskriftar: Chocolate Covered Katie
1 ½ bolli svartar baunir (1 dós)
2 msk. kakó
½ bolli haframjöl
¼ tsk. salt
1/3 bolli hlynsíróp
2 msk. sykur*
¼ bolli kókosolía eða önnur grænmetisolía
2 tsk. vanilludropar
½ tsk. lyftiduft
½–¾ bolli súkkulaðidropar
*Í stað sykurs má nota smá klípu af óskorinni stevíu eða sleppa sykrinum alfarið og auka magn hlynsíróps í ½ bolla
Aðferð:
- Ofn hitaður í 175 gráður. Vökvi sigtaður af baunum og baunir skolaðar. Öllum hráefnum blandað saman í matvinnsluvél þar til kekkjalaust deig hefur myndast. Einnig er hægt að nota blandara, en höfundur uppskriftar mælir fremur með matvinnsluvél. Súkkulaðidropum blandað varlega saman við og deigi síðan hellt í 20x20 cm. eldfast mót.
- Bakað í 15–18 mínútur. Kælið í minnst 10 mínútur áður en skorið er í bita. Ef brúnkan virðist aðeins laus í sér eða hrá eftir baksturstímann er hægt að setja hana í ísskáp yfir nótt og borða daginn eftir.