fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Svalandi sumardrykkir í sólinni

Ritstjórn DV
Laugardaginn 6. júlí 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á góðvirðisdögum er fátt skemmtilegra en dúka upp borð í garðinum og bjóða fjölskyldu og vinum í mat og drykk. Þá getur líka verið sniðugt að halda svokallað Pálínuboð þar sem allir gestirnir koma með eitthvað á veisluborðið. Í slíkum boðum er einkar hentugt að húsráðandi sjái um drykkina. Hér eru nokkrar uppskriftir af sannkölluðum sumardrykkjum sem kitla bragðlaukana og svala þorstanum á heitum sumardögum. Flestir drykkirnir eru óáfengir en það er ekkert því til fyrirstöðu að bæta áfengi út í uppskriftirnar, eða sleppa því, eftir smekk.

Bláberjalímonaði

Fyrir fjóra

Einstaklega bragðgóður sumardrykkur í þykkri kantinum. Gæti líklega flokkast sem smoothie og er því örlítið meira seðjandi en venjulegur svaladrykkur.

Hráefni:
1 og ½ bolli bláber
1 bolli límonaði
½ bolli fersk mynta og örlítið meira til skreytingar
¼ bolli flórsykur
3 bollar klakar

Aðferð:
Settu allt hráefnið í blandara og blandaðu saman þangað til allt er orðið vel maukað og silkimjúkt. Helltu í fjögur glös og skreyttu með myntulaufum.

Ferskjudrykkur með engiferívafi

Fyrir fjóra

Þeir gerast varla auðveldari í framkvæmd, svaladrykkirnir. Hérna þarf ekkert að þeyta, hrista eða blanda. Bara henda öllum hráefnunum saman í stóra könnu og njóta.

Hráefni:
3 bollar engiferöl
½ ferskjusafi
2 vel þroskaðar ferskjur
1 teskeið ferskt rifið engifer

Aðferð:
Skerðu ferskjurnar í þunnar sneiðar og blandaðu öllu hráefninu í stóra könnu. Settu svo nóg af klökum út í drykkinn svo hann haldist vel kaldur á veisluborðinu úti í garði.

Jalapeno – lime blanda

Fyrir fjóra

Þessi er alveg einstaklega skemmtilegur og jalapenoið setur svo sannarlega punktinn yfir i-ið. Kitlandi sterkt bragðið af svalandi drykknum er vægast sagt áhugavert.

Hráefni:
3 bollar sódavatn
¼ bolli ferskur lime safi
¼ bolli agave sýróp
1 lime, skorið í þunnar sneiðar
1 jalapeno pipar, skorinn í þunnar sneiðar

Aðferð:
Blandaðu öllu hráefninu saman í könnu og hrærðu aðeins í. Skelltu svo slatta af klökum út í til að halda drykknum köldum.

Hungangsmelónu-, gúrku- og myntudraumur

Fyrir átta

Þessi drykkur krefst aðeins meiri undirbúnings en hinir – þó ekki mikils. Við erum að tala um nokkrar mínútur sem fara í að skera og mauka.

Hráefni:
1 hunagnsmelóna, niðurskorin án barkar
1 agúrka, hálf skorin í bita og hálf í sneiðar
1 bolli myntulauf
½ bolli ferskur limesafi (8 lime) og 1 lime niðurskorið
Skvetta af gini, ef fólk vill

Aðferð:
Maukaðu melónuna vel, til dæmis með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Settu svo agúrkubitana og myntulaufin saman í blandara (töfrasprotinn gengur líka) og maukaðu vel. Blandaðu öllu maukinu saman og sigtaðu ofan í stóra könnu. Bættu svo limesafanum og niðursneiddu agúrkuna út í blönduna, og gininu líka, ef það er notað. Fylltu upp könnuna með klökum og kældu í að minnsta kosti 30 mínútur áður en drykkurinn er borinn fram.

Ananas-, lime- og kókoshnetu-drykkur

Fyrir átta

Þessi er svo suðrænn og svalandi að manni líður eins og maður sé staddur á suðlægri strönd þegar maður sýpur á honum í sólinni.

Hráefni:
3 bollar ananassafi
2 bollar kókosvatn
½ bolli ferskur limesafi (úr 8 lime)
2 bollar sódavatn eða kolsýrt vatn
½ ananas skorinn niður í langa báta
Smá skvetta af rommi, ef fólk vill

Aðferð:
Blandaðu ananassafa, kókosvatni og limesafa saman í stóra könnu og kældu í að minnsta kosti 30 mínútur.
Bættu svo sódavatninu út í rétt áður en drykkurinn er borinn fram, fylltu glösin með klökum og skreyttu með ananasbát.

Jarðarberja – timjan límonaði

Fyrir átta

Guðdómlega sætur og svalandi sumardrykkur, sem krefst smá undirbúnings, en er svo sannarlega þess virði.

Hráefni:
1 bolli sykur
8 greinar af timjan og örlítið meira til að skreyta með
2 ½ bolli jarðarber, niðurskorin
1 ½ bolli ferskur sítrónusafi (úr um 10 sítrónum)

Aðferð:
Settu sykur og timjan í pott, ásamt einum bolla af vatni. Leyfðu suðunni að koma upp og hrærðu reglulega í blöndunni. Þegar sykurinn er orðinn vel bráðinn, slökktu þá undir pottinum og leyfðu bráðinni að kólna. Veiddu svo timjanið upp úr. Blandaðu jarðarberjunum og sítrónusafanum út í sykurbráðina, settu í stóra könnu og fylltu upp með 5 bollum af vatni og nóg af klökum. Gott er að kæla drykkinn í ísskáp í að minnsta kosti í hálftíma áður en hann er borinn fram. Hvert glas er skreytt með timjan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa