Það er ekki á hverjum degi sem ísbúðareigendur komast í heimsfréttirnar en sú var raunin þegar Robin Aliting hóf sölu á hráum síldarís í verslun sinni í Rotterdam. Þrátt fyrir að hollenskir matgæðingar séu annálaðir fyrir ást sína á síld þótti mörgum heldur langt gengið að bæta síldinni saman við sætmetið.
Ísinn samanstendur af síld, sykri, lauk og rjóma, en þrátt fyrir að áferðin þyki líkjast hefðbundnum ís er bragðið talið sterkt og bera ríkjandi lykt af sjávarfangi. Sjálfur mælir Alting með að framsæknir sælkerar neyti íssins í smáum skömmtum.