„Coca-Cola Blak“ var, eins og fyrr segir, tekið af markaði 2008 eftir aðeins tvö ár. Drykkurinn er hefðbundið Coca-Cola með kaffibragði og virtust viðskiptavinir ekki hrifnir af honum. CNN hefur eftir Nancy Quan, yfirmanni tæknimála hjá Coca-Cola, að fyrirtækið hafi verið á undan sinni samtíð með þessum drykk. Viðskiptavinirnir hafi ekki verið reiðubúnir til að samþykkja Coca-Cola með kaffibragði árið 2006.
En smekkur fólks breytist með tímanum og því telur Coca-Cola að markaðurinn og neytendur séu nú reiðubúnir til að taka vel á móti þessum drykk. Á undanförnum árum hefur Coke sett vörur, sem líkjast Coca-Cola Blak, á markað í nokkrum löndum. Þeir heita til dæmis Coca-Cola Plus Coffee og Coca-Cola With Coffee. Þessar tegundir innihalda meira koffín en hið upprunalega Coca-Cola Blak.
Nú er til dæmis hægt að fá kaffiafbrigði af Coca-Cola í Ástralíu, Ítalíu, Spáni, Taílandi og Póllandi. Móttökurnar hafa verið svo góðar að sögn talsmanns Coca-Cola að þessar tegundir verða settar á markað í 25 löndum til viðbótar á þessu ári. En stærsta prófraunin verður bandaríski markaðurinn. Þess er vænst að drykkurinn komi á markað þar á næsta ári.