April Love Geary deildi myndbandi af dóttur sinni, 16 mánaða, borða Flamin‘ Hot Cheetos snakk. April er trúlofuð söngvaranum Robin Thicke og saman eiga þau Miu.
Eftir að hafa deilt myndbandinu af Miu borða snakkið á Instagram brást Internetið harkalega við.
„Þessi Cheetos eru meira en eitruð, hún er bara barn!“ Skrifaði einn fylgjandi við myndbandið.
„Farðu að lesa uppeldisbók,“ skrifaði annar.
„Hún er svo falleg! Þú þarft að hætta að gefa henni erfðabreytt matvæli.“
Einn fylgjandinn ákvað að senda April grein með fyrirsögnina „Flamin‘ Hot Cheetos senda mörg börn á bráðamóttökuna hvert ár,“ í einkaskilaboðum.
April var ekki sátt og svaraði: „Við erum hér fyrir góðan tíma, ekki langan tíma.“
Ein móðir kom April til varnar: „Getur einhver sagt mér hvar ég get keypt uppeldisbók sem segir að ég megi ekki gefa börnunum mínum hot cheetos? Ég þarf að 21 mánaða gamla barnið mitt skilji af hverju hann megi ekki fá það lengur.“
April svaraði: „Við erum slæmar mömmur,“ og bætti við nokkrum hlátursköllum.