Í nýjum þætti af Kokkaflakki, sem sýndur er í Sjónvarpi Símans Premium, heimsækir framleiðslumeistarinn Ólafur Örn Ólafsson Chicago í Bandaríkjunum.
Í Chicago hittir hann fyrir Inga Rúnarsson, kokteilabarþjón á einum af heitustu kokteilbörunum í borginni, The Aivary.
Eins og sést í meðfylgjandi stiklu gerir Ólafur Örn lítið annað en að drekka kokteila og kampavín í borginni, en hann ber matarmenningunni í Chicago góða söguna.