MMR er með puttann á púlsinum og spyr spurninganna sem landsmenn vilja svar við. Ný könnun þeirra miðaði að því að svara hinni umdeildu spurningu um hvort flatbökur og kokteilsósa eigi samleið.
Könnunin var lögð fyrir 934 manna úrtak einstaklinga, 18 ára og eldri.
Á vef MMR segir:
„Mörgum þykir okkur vænt um kokteilsósuna og notum athugasemdalaust af hinum margvíslegu tilefnum. Þau okkar sem stunda þá iðju að nota kokteilsósu með pizzu könnumst hins vegar mörg við að sessunautar reki upp stór augu þegar kokteilsósan góða er dregin fram með pizzunni. Rétt eins og um einhverskonar afbökun pizzunnar sé að ræða!“
Niðurstöður könnunarinnar voru þær að fjórðungur landsmanna fær sér kokteilsósu á pitsur og þeirra líklegastir voru unga fólkið og íbúar landsbyggðarinnar.
„Unga fólkið reyndist líklegra til að dekra flatbökuna með majónesblöndunni vinsælu en 35% svarenda á aldrinum 18-29 ára kváðust fá sér kokteilsósu með pizzu. Fór kokteilsósunotkun síðan minnkandi með auknum aldri og mældist minnst meðal svarenda 68 ára og eldri – en 6% þeirra kváðust fá sér kokteilsósu þegar pizza væri á boðstólum.
Þá reyndust íbúar landsbyggðarinnar (30%) líklegri til að borða kokteilsósu með pizzu en svarendur af höfuðborgarsvæðinu (20%).“
Þar hafið þið það lesendur góðir. Ef þið tilheyrir þeim fjórðungi þjóðarinnar að kjósa kokteilsósu með pitsu, næst þegar einhver gagnrýnir athæfið getið þið svarað af öryggi :„Enn einn af hverjum fjórum á Íslandi gerir þetta! “
Hvað segja lesendur DV? Já eða nei við kokteilsósu á pitsu ?