fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Matur

Churros con Chocolate á spænska vísu að hætti Maríu Gomez

Aníta Estíva Harðardóttir
Laugardaginn 11. maí 2019 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Gomez er gift fjögurra barna móðir sem heldur úti síðunni paz.is þar sem hægt er að nálgast margar virkilega girnilegar uppskriftir. María, sem er hálfur Spánverji, leggur mikinn metnað í eldamennsku sína og þar sem spænsk menning er stór hluti af hennar lífi setur hún reglulega inn uppskriftir að hefðbundnum spænskum réttum.

María Gomez Leggur mikinn metnað í eldamennsku sína.

Nýlega deildi María uppskrift að churros sem er oftast borðað sem morgunmatur á sparidögum á Spáni. DV fékk góðfúslegt leyfi Maríu til þess að deila uppskriftinni:

„Ég ákvað að gera churrosið frekar hefðbundið nema ég bætti í deigið eggi, smjöri og vanilludropum. Við það verða þeir enn gómsætari og bragðmeiri en hin hefðbundnu churros. Svo auðvitað er það algjör skylda að dýfa churrosinu í súkkulaði því annars væri það ekki alvöru churros-máltíð skal ég segja ykkur. Þessu churros er síðan betra að velta aðeins upp úr sykri blönduðum við örlítinn kanil. Þótt churros sé djúpsteikt þurfið þið ei að hræðast því hér nota ég bara djúpa pönnu og olíu svo það er meira eins og maður sé að steikja á pönnu en djúpsteikja. Hér þarf ekki djúpsteikingarpott eða sérstök áhöld.“

Í churrosið þarf

  • 250 ml vatn
  • 55 g ósaltað smjör
  • 1 msk. sykur
  • 1/4 tsk. salt
  • 140 g hveiti
  • 1 stórt egg
  • 1/2 tsk. vanilluextract eða vanilludropar
  • 1 lítri grænmetisolía
  • Sykur til að velta upp úr:
  • 1/2 bolli sykur
  • 3/4 msk. kanill

Aðferð:

  • Byrjið á að hræra saman sykurinn og kanilinn sem á að fara utan á og setjið á matardisk
  • Nú byrjum við á sjálfu churrosinu
  • Vatn, smjör og sykur er sett saman í pott og látið byrja að sjóða, lækkið þá hitann niður í miðlungshita
  • Bætið svo hveitinu út í pottinn smátt og smátt og hrærið vel í á meðan, mjög svipað og þegar maður gerir vatnsdeigsbollur
  • Færið nú deigið yfir í skál og látið kólna í eins og 5–10 mínútur við opinn glugga
  • Bætið svo vanillu og eggi við í skálina og byrjið strax að þeyta með handþeytara, þar til deigið er orðið silkimjúkt og vel þjappað saman í kúlu
  • Setjið deigið í sprautupoka með frekar stórum stjörnustút
  • Mér finnst best að sprauta svo deigi á smjörpappír í lengjur og klippa í kringum hverja lengju svo hver og ein fái sinn smjörpappírsbút
  • Hitið nú olíuna á djúpri pönnu og setjið smá deig út á til að vita hvort hún sé heit. Þegar hún er orðin heit lækkið þá ögn undir henni, ekki mikið, bara aðeins
  • Setjið nú eins og 3–4 lengjur á smjörpappír út á olíuna og takið pappann með töng strax af, mjög þægilegt að gera þetta svona svo slettist ekki á mann olía
  • Steikið þar til þeir eru orðnir vel gullinbrúnir og passið að hafa þá nógu lengi svo þeir verði ekki hráir að innan
  • Setjið þá svo ofan á disk með eldhúspappír til að taka af alla auka olíu
  • Að lokum er þeim svo velt upp úr sykurblöndunni
Churros með súkkulaðisósu Mynd: María Gomez.

Súkkulaðið með churrosinu

  • 100 g 70 % súkkulaði
  • 1 dl rjómi
  • klípa af salti
  • Aðferð:
  • Setjið allt saman í pott og hrærið stöðugt í meðan súkkulaðið er að bráðna
  • Berið svo fram heitt með churrosinu
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa